02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í D-deild Alþingistíðinda. (4875)

21. mál, ríkisrekstur atvinnuvega og ríkiseignarjarða

Forseti (JBald):

Ég sé ekki neitt það í dagskrártill. þessari, sem geti verið ástæða fyrir því, að henni verði vísað frá. Menn getur vitanlega greint á um innihald hennar, en ég fæ ekki séð, að hún brjóti í bága við þingsköp eða fyrri venjur í þessum efnum. Get ég því ekki orðið við tilmælum hv. þm. um að vísa henni frá.