02.04.1935
Sameinað þing: 8. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 199 í D-deild Alþingistíðinda. (4882)

21. mál, ríkisrekstur atvinnuvega og ríkiseignarjarða

Jakob Möller:

Þessi dagskrártill. er að ýmsu leyti óvenjuleg og óþingleg, og get ég að því leyti tekið undir ummæli hv. 6. þm. Reykv., en ég vil bæta því við, að ég tel óheimilt samkv. þingsköpum að bera hana undir atkv., af því að hún er ekki rökstudd dagskrártill. Hún er aðeins útúrsnúningur á þáltill., sem er um það, hvort bera skuli undir þjóðaratkvæði, hvort hér á landi skuli stefnt að allsherjar þjóðnýtingu atvinnuveganna. Í till. þessari, sem kölluð er till. til rökst. dagskrár, er farið fram á að vísa þáltill. frá, með þeim rökstuðningi, að meðal ýmsra stjórnmálaflokka hafi verið samþ. ríkisrekstur í einstökum tilfellum. Þetta er því alveg út í hött og enginn rökstuðningur fyrir frávísun þáltill. Samkv. framansögðu tel ég mig því ekki geta greitt atkv. um fjarstæðu sem þessa og sit því hjá.