04.04.1935
Sameinað þing: 11. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í D-deild Alþingistíðinda. (4890)

126. mál, forstaða Raftækjaeinkasölu ríkisins

Jón Baldvinsson:

Þessi þáltill. um forstjóra raftækjaeinkasölunnar kemur fram fyrst í dag, kannske síðasta dag þessa þinghluta. Það er því eftir atvikum rétt, að ég sé stuttorður um till. Þó get ég ekki hjá því komizt að fara um hana nokkrum orðum. Hæstv. fjmrh. hefir tekið þessa þáltill. sem vantraust, og verð ég að segja það, að eins hefði ég gert í hans sporum. Mér þykir því eðlilegt, að hæstv. ríkisstj. vill ekki taka við þessari þáltill.

Annars kvaddi ég mér hljóðs til þess að lýsa afstöðu Alþfl. til þess, máls með nokkrum orðum. Það er Vitanlegt, að þessir tveir flokkar, Alþfl. og Framsfl., starfa saman og standa að núv. ríkisstj. Þessu sambandi er ekki slitið enn. Þessir tveir flokkar hafa þrátt fyrir þetta samstarf hvor sína skoðun, og það jafnvel á ýmsum þeim verkum, sem framkvæmd eru af hinum ýmsu ráðherrum. Þannig verður það alltaf, þegar tveir flokkar, sem ekki byggja stefnu sína á sama grundvelli, starfa saman. Það er því ekkert nýtt, þó þessir flokkar geti orðið ósammála um dægurmál, eins og t. d. einstakar starfsveitingar eða embættisveitingar. Hitt er annað mál, hvort mismunandi skoðanir á slíkum einstökum atriðum eru látnar valda starfsslitum milli flokka, og ég býst ekki við, að það tilefni, sem með þessari þáltill. er hér gefið af andstöðuflokki stj., verði notað til þess að slíta samvinnu Alþfl. og Framsfl. fyrr en þeim sjálfum rétt þykir. Því verður ekki neitað, að komið hefir fram óánægja hjá ýmsum mönnum í Alþfl. yfir einstökum ráðstöfunum stj., en hliðstæð dæmi má mörg finna fyrir utan pollinn. T. d. er það svo í Danmörku, þar sem radikali flokkurinn og sósíalistar standa saman að stj., að þeir radikölu eða verið óánægðir með það, sem ráðherrar sósíalista gera, og sósíalistar óánægðir með það, sem hinir radikölu ráðherrar gera. Þetta stafar af því, að flokkarnir hafa hvor sínar skoðanir á ýmsum málum. En þó ýmsir menn í Alþfl. séu óánægðir með þá ráðningu, sem hér um ræðir, þá munu þeir eða flokkurinn ekki nota þessa till. til friðslita, því ég býst við, að afleiðingin af samþykkt þessarar till. yrði sú, að hæstv. forsrh. bæðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt, en ekkert hefir komið fyrir í samvinnu þessara tveggja flokka, sem hafi gert það eðlilegt, að stjórnarskipti verði, og þá sennilega nýjar kosningar, og það veit hv. 3. þm. Reykv. Þó hann hafi nú tekið fyrir þetta einstaka dæmi, þá veit hann, að við báðir, hann og ég, höfum fengið aðfinnslur út af þeim störfum, sem við höfum gegnt, og það jafnvel innan okkar eigin flokka, þó þær hafi ekki komið opinberlega fram. En þó aðfinnslur hafi komið fram hjá Alþfl. yfir þessari ráðstöfun, þá er það annað mál, að það verður ekki látið valda starfsslitum. Og ef að því kemur, að Alþfl. telur sig ekki lengur geta starfað með Framsfl., þá mun hann sjálfur ákveða tilefni til starfsslita, en ekki sækja þau til andstöðuflokks. — Án þess ég sé að mælast undan umr. um þetta mál, þá get ég látið hér staðar numið til þess að flýta fyrir afgreiðslu nýtari mála.

Með tilvísun til þess, sem ég hefi nú sagt, ber ég ásamt form. Framsfl., hv. þm. S.-Þ., fram svo hljóðandi rökst. dagskrá, er ég leyfi mér að afhenda hæstv. forseta:

Með því að Alþingi ber fullt traust til ríkisstjórnarinnar og hvers einstaks ráðherra, sér það eigi ástæðu til að greiða atkvæði um þingsályktun þessa og tekur fyrir næsta mál á dagskránni.