04.04.1935
Sameinað þing: 11. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 217 í D-deild Alþingistíðinda. (4898)

126. mál, forstaða Raftækjaeinkasölu ríkisins

Flm. (Jakob Möller) [óyfir]:

Ég þarf lítið að svara hæstv. fjmrh. Hann ráðleggur okkur andstæðingum sínum eindregið til þess að geyma ásakanirnar þangað til seinna, þegar ávextirnir af glappaskotum hans eru komnir í ljós. Við höfum nú einmitt talið rétt að fara þveröfugt að, að henda á hneykslin áður en þau fara að verka. Þetta er góð regla. Og það virtist líka svo, að annar stuðningsflokkur stj. áliti, að þessu væri svo farið, því að höfuðmálgagn flokksins vítti þetta framferði ráðh. mjög, ef mögulegt skyldi vera að snúa ráðh. á hans villigötum áður en það yrði um seinan. En það sýnir sig nú, að Alþfl. hefir valið sér það hlutskipti að kyngja öllum stóru orðunum, renna aðfinnslunum niður og smjatta á þeim, þar sem form. Alþfl. og forseti Sþ. lýsti því yfir hér, að hans flokkur myndi ekki greiða þessari till. atkv. Benti hæstv. forseti mér á það í því sambandi, að við myndum nú báðir hafa orðið fyrir ávítum innan okkar flokka og ýmislegt að gerðum okkar fundið. Ég minnist þess nú satt að segja ekki, og um mig skal ég fullyrða, að það hefir aldrei komið fyrir, að slíkar aðfinnslur hafi verið bornar fram opinberlega í blöðum míns flokks. Ég hefi heldur aldrei séð ávítur í garð formanns Alþfl. í hans eigin flokksblöðum um starf hans (JBald: Ég sagði ekki opinberlega). Nei, en ég er hér að komast að samlíkingu. Nú hefir Alþfl. vítt opinberlega og óvægilega gerðir hæstv. ríkisstj., og þess vegna er þetta ekki sambærilegt við það, þótt einstakir flokksmenn okkar hæstv. forsetu Sþ. finni að gerðum okkar í einstökum tilfellum og tali um það í hljóði. Hæstv. forseti talaði um það, að þessi till. kæmi fram á seinasta degi þingsins. Ég veit ekki, hvort hann er að harma það, hve seint hún er fram komin, og hvort þetta á að skoðast sem umkvörtun til okkar sjálfstæðismanna vegna þess að við skyldum ekki vera fyrri til. En þar til er nú því að svara, að þessi hneykslanlega stjórnarframkvæmd er nýlega gerð, og þar við bættist, að fullkomin ástæða var til að ætla, að sá stuðningsflokkur stj., sem hæstv. forseti heyrir til, myndi eitthvað aðhafast í málinu, þar sem aðalmálgagn flokksins hafði tekið í málið á þennan hátt, sem það nú gerði. En þegar það var sýnt, að þingflokkurinn ætlaði ekkert í málinu að gera, þótti ekki forsvaranlegt að aðhafast ekkert á þingi, og því er þessi till. fram komin, og það svona seint. — Ég nenni ekki að fara að endurtaka deilurnar við hæstv. fjmrh. Hann heldur áfram í sama dúr og áður, að svara því, sem ekki hefir verið spurt um, eins og t. d. þegar hann segir, að ég hafi spurt um það, hvers vegna hann hafi skipað Sigurð Jónasson forstjóra raftækjaeinkasölunnar. Ég spurði aldrei um þetta. (Fjmrh.: Jú, jú). Nei, en ég spurði um það, hvers vegna ekki hefði mátt fá viðtækjaverzlun ríkisins þessa verzlun í hendur (Fjmrh.: Ég svaraði því). Nei, ráðh. svaraði því ekki, og bann reyndi ekki að mótmæla því, að raftækjaeinkasalan og viðtækjaverzlunin eru þó miklu skyldari fyrirtæki en tóbaksverzlunin og raftækjaeinkasalan. Af þeirri ástæðu hefði líka verið miklu nær að fela viðtækjaverzluninni sölu á raftækjunum. Ég veit ekki, hvort þetta á að skoðast sem vantraust á forstjóra viðtækjaverzlunarinnar. Ef svo er, þá hygg ég, að það sé mjög ómaklegt, a. m. k. það sem ég þekki til. Ég vil benda ráðh. á, að við sjálfstæðismenn erum ekki einir um þá skoðun, að fremur hefði átt að ráðstafa þessu á þennan veg; því er líka haldið fram í Alþýðublaðinu. Annars mótmæli ég því, sem hæstv . ráðh. og raunar hv. þm. S.-Þ. lögðu mesta áherzlu á, að þessari till. væri fyrst og fremst beint gegn Sigurði Jónassyni. Til hans eiga þessar aðfinnslur ekkert erindi. Þeim er einungis beint gegn hæstv. stj., fjmrh., sem hefir framið þessi afglöp, en ekki S. Jónasson, og ég leyfi mér að efast um það, að Sig. Jónasson hefði sótt það svo fast að fá þessa aðstöðu. Ég hygg ekki, að fjmrh. hafi misnotað vald sitt sérstaklega vegna S. Jónassonar. Það eru aðrir menn, sem þarna eiga hagsmuna að gæta og ég hygg, að hæstv. ráðh. hafi haft ríkar í huga. (Fjmrh.: Hverjir?). Meðeigendurnir í raftækjaverzlun Íslands h/f, og hefi ég áður vikið að því. En um þessi stórfrækilegu afrek Sigurðar Jónassonar við raftækjaverzlun Íslands, sem hv. þm. S.-Þ. var að tala um og m. a. væru þau, að Sig. Jónassyni væri það að þakka, að Sogið væri virkjað, þá er það fyrst við þetta að athuga, að Sogið er ekki enn virkjað, og í öðru lagi er allt, sem hv. þm. sagði, byggt á misskilningi. Það hefir ekki verið farið eftir teikningum raftækjaverzlunarinnar, og sú virkjun, sem nú er verið að undirbúa, er alls ekki framkvæmd eftir þeim fyrirætlunum, sem Sigurður Jónasson beitti sér sérstaklega fyrir. Og staðurinn, sem virkjað verður á, er alls ekki fundinn af Sigurði Jónassyni, heldur manni, sem til þess var fenginn. Annars kemur þetta ekki neitt þessu máli við, en þó skylt að benda hv. þm. S.-Þ. á það, að hann er sá af einstökum mönnum, sem sérstaklega hefir tafið virkjun Sogsins og komið í veg fyrir, að byrjað væri á henni. Hv. þm. S.-Þ. fékk sinn flokk til þess að beita sér á móti því, að ríkisábyrgð fengist til verksins. Hefði hv. þm. S.-Þ. ekki verið málinu til trafala, væri þegar byrjað á verkinu fyrir nokkru síðan.

Hv. 2. landsk. tekur eiginlega ekki að svara neinu. Hann fór ekkert dult með það, að hann kveddi sér hljóðs sem hluthafi í raftækjaverzlun Íslands og fyrrv. hluthafi í tóbaksverzlun Íslands. Þessi aðstaða er svo sérstök, að það er eðlilegt, að hans afstaða til málsins verði nokkuð sérkennileg. Aðeins vil ég minna á það, að meðan tóbaksverzlunin var frjáls, gaf hún ríkissjóði meiri tekjur en eftir að einkasalan komst á. Einkasalan varð að hækka verð á vörunum til þess að geta skilað jafnmiklum tekjum í ríkissjóðinn og áður höfðu fengizt með tollum af þessari vöru. Þetta er svo þekkt fyrirbrigði með verðhækkun á vörum þeim, sem ríkið tekur einkasölu á, og jafnvel Alþbl. gerir ráð fyrir og tekur beint fram, að gera megi ráð fyrir því, að verð á rafmagnsvörum stórhækki. Og það byggist sérstaklega á því, hve gert er ráð fyrir gífurlegri álagningu. En það er auðsætt, að það er efst í huga þess, sem greinina skrifar, að þetta sé venjan með einkasölur. Þetta er líka eðlilegt. því að ríkið tekur einkasölu á vörum til þess að græða á þeim.

Ég get svo vel látið útrætt um þetta mál. Ég veit, að hvað lengi sem ég deildi við hæstv. fjmrh., þá mundi hann reyna að smjúga úr greipum manns alveg eins og marglittan á slepjunni einni saman, en upplýsinga í þessu máli mun ekki að vænta frá hans hálfu.