20.11.1935
Neðri deild: 78. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í D-deild Alþingistíðinda. (4915)

178. mál, strandvarnir við Vestmannaeyjar

Flm. (Jóhann Jósefsson):

Ég skil, að hæstv. ráðh. verði að taka tillit til kostnaðarhliðar málsins. Mér fellur ekki illa till. um, að málið verði athugað í sjútvn. Ég hefi ekki nema góðs að vænta af þeirri athugun. Það er nauðsynlegt, að sem bezt sé athugaður mismunurinn á gæzlu og gæzluleysi á góðum, viðurkenndum veiðistöðum, eins og við Vestmannaeyjar, að sem nákvæmust athugun fari fram á því, hverja þýðingu þessar veiðar hafa fyrir afkomu sjávarútvegsins og tekjur ríkissjóðs. Eg er þess vegna ekki mótfallinn því, að till. mín sé athuguð í n. Og það er fjarri mér að álíta, að orð hæstv. ráðh. séu af þeim rótum runnin, að hann vilji koma málinu fyrir kattarnef.