04.04.1935
Sameinað þing: 12. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í D-deild Alþingistíðinda. (4937)

122. mál, þýsk ríkismörk

Bergur Jónsson:

Ég vil benda á, að hér er haft í frammi af hæstv. forseta og ríkisstj. alveg einstætt gerræði og óforsvaranlegt: Þar sem margir hafa beðið um orðið, þá er eigi sanngjörn ástæða til að leyfa ekki umr., og skora ég á forseta að bera það undir atkv., hvort leyft skuli umr. eða ekki.