10.10.1935
Sameinað þing: 13. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2340 í B-deild Alþingistíðinda. (51)

Kæra um kjörgengi

Gísli Sveinsson:

Við teljum, minni hl. n., að þetta mál sé allt kunnugt, ekki aðeins þeim hluta landsfólksins, sem hér á sæti, heldur miklu fleirum, og situr sízt á þm. að fylgjast ekki með í slíku máli. Þetta er engin ástæða til þess að fresta málinu, og krafa okkar er, að það verði tekið fyrir nú þegar.