12.11.1935
Efri deild: 67. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 441 í B-deild Alþingistíðinda. (549)
130. mál, fiskimálanefnd o.fl.
Frsm. (Ingvar Pálmason):
Það er rétt, að brtt. hafa ekki verið ræddar í sjútvn. Á fundi í gærmorgun var þó málinu hreyft, en óskir komu ekki fram um að ræða það frá þriðja nefndarmanninum. Hinsvegar vil ég ekki sem form. n. hafa neitt á móti því, að hún taki málið til frekari meðferðar.