14.11.1935
Efri deild: 69. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 443 í B-deild Alþingistíðinda. (553)

130. mál, fiskimálanefnd o.fl.

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Það er dálítið einkennilegt við þessar umr., að í rauninni eru hér tvo mál, sem liggja fyrir. Annarsvegar er það sjálft frv., sem er í raun og veru ekki annað en staðfesting á bráðabirgðalögum um breyt. á I. um fiskimálanefnd o. fl., sem ekki orkar tvímælis, vegna samkomulags, sem er um það mál. Annars er þetta frv. dálítið sögulegt plagg og vekur upp endurminningar frá síðasta þingi, þegar rætt var um afstöðu stj. í fisksölumálunum. Er ekki ástæða til að rifja það frekar upp; það hefir oft verið gert, m. a. á mörgum stjórnmálafundum í sumar, en það er ljóst og vitað mál, að nú er þessum málum ráðstafað á allt annan hátt en stj. ætlaðist til í upphafi, eða þegar frv. þetta kemur fyrst fyrir þingið í fyrra. Það var að vísu góðra gjalda vert af hæstv. stj., þegar hún sá, að þetta var komið í óefni og sneri frá villu síns vegar og tók það ráð að láta fisksölusambandið haldast, þótt það yrði í dálítið öðru formi, t. d. að því leyti, að stj. þess varð öðruvísi og dýrari. Samkv. þessum bráðabirgðal. og þessu frv. er stjórn fisksölusamlagsins mjög vandlega skipuð; hana skipa fulltrúar, sem aftur eru skipaðir af öðrum fulltrúum hér og hvar af landinu, og skulu þessir stjórnarfulltrúar gæta þess, að vel megi fara úr hendi sala þess fiskjar, sem við getum selt í útlöndum, við þetta frv. er svo í rauninni tengt annað frv. með brtt. þeim, sem hér liggja fyrir. Það liggur nærri, að það sé óforsvaranleg málsmeðferð að tengja þannig, við síðari umr., alveg nýtt mál, sem ekki er neitt smámál, við annað frv., því að ég verð að segja, að þessar brtt., sem hér liggja fyrir, fara fram á nýja lausn á mjög vandasömu máli. Verði þær samþ. hér í einhverju formi, þá mun frv. fara til hv. Nd. og fá þar líka eina umr., og þetta frv., sem ekki liggur ljóst fyrir, fær aðeins eina umr. í hvorri deild, í stað þriggja umr., eins og venjulegt er. Það kann að vera, að það brjóti ekki í bága við þingsköp að tengja þannig tvö mál saman, en það er samt ákaflega óeðlilegt, eins og sjá má af því, að með þessum brtt. eru úr gildi numin l. um allt annað atriði en hér um ræðir, sem sé l. um markaðs- og verðjöfnunarsjóð, og þannig fela þessar brtt. í sér ráðstafanir um allt annað en það, sem um er að ræða í frv. sjálfu. Það hljóta talsverð veðrabrigði að vera orsök til þess, að slíkar till. koma fram, því að það er tiltölulega stutt síðan allir flokkar á þingi voru sammála um, að nauðsyn bæri til þess að leggja afarhátt gjald á útfluttan fisk, til þess, eins og mig minnir að það hafi verið orðað, að viðhalda, auka og tryggja markað fyrir saltfisk. Enda þótt þessu gjaldi hafi verið komið á, þá er ekki þar með sagt, að allir hafi verið á eitt sáttir um réttmæti þessa gjalds á útfluttum fiski og um það, hvort það hafi verið rétt ákveðið og hvort ástæða hafi verið til þess að taka svo mikið fé af fiskútflytjendum. Þótt menn væru sammála um höfuðtilgang þessa markaðs- og verðjöfnunarsjóðs, þá gátu vitanlega verið skiptar skoðanir um það, hvernig ætti að innheimta þetta fé og hve mikið það skyldi vera. Það er því í sjálfu sér ekki óeðlilegt, þótt fram komi frv. um breyt. á þessu, og frv. í þá átt er komið fram frá hendi þeirra, sem fóru fram á, að þessu gjaldi yrði létt af, en á hinn bóginn á að verja í þessu skyni nokkru af hinum almennu tekjum ríkissjóðs, og það er eðlilegt, að slík till. komi fram, því að það er ekki opinberlega upplýst á neinn hátt, að þörfin fyrir að tryggja og auka markaðinn í útlöndum sé nú horfin. Það er því í alla staði eðlilegt, að þeir, sem hafa áhuga á að koma sínum vilja fram í því að breyta innheimtuaðferðinni og kannske upphæðinni, sem varið er í þessu skyni, telji ekki annað forsvaranlegt en að stj. sé heimilað nokkurt fé til þess að halda uppi þessari nytsömu starfsemi. Það hefir verið deilt um þetta frv., og það hefir verið talið hvatskeytislegt að koma fram með það, en á hinn bóginn hefir það verið mjög vandlega undirbúið, bæði af þeim, sem hafa verið í stj. fisksölusamlagsins, og hv. sjútvn. Nd., svo að það kemur ekkert flatt upp á menn, þótt þessar till. komi fram. Þegar hæstv. stj. sér sér fært að fella niður gjald, án þess að taka svipað gjald í staðinn, þá eru það auðvitað í fljótu bragði gleðileg tíðindi, að það skuli ekki vera þörf á þessum gjaldeyri, og vitanlega dettur þeim, sem borið hafa fram frv. um breyt. á þessu gjaldi, ekki í hug að neyða neinni slíkri heimild upp á hæstv. stj. á móti yfirlýsingu frá henni um það, að hún þurfi ekki á þessu gjaldi að halda; en þessar brtt. hæstv. stj. verða ekki skildar öðruvísi en sem yfirlýsing frá henni um það, að hún hafi ekki þörf fyrir þetta gjald. Þessu hljóta menn að taka fegins hendi, því að satt að segja er þetta gjald á útfluttum fiski svo hátt, að það er engin furða, þótt menn séu orðnir þreyttir á því að standa undir þessum skattabyrðum, enda þótt þeir hafi sætt sig við það hingað til í þeirri trú, að það væri óhjákvæmilegt til framhaldstilveru atvinnuvegar þeirra. Þegar búið er að taka þetta 6% gjald og það, sem stjórn þessara mála kostar, það, sem þarf til þess að jafna milli þeirra, sem fisk selja, og loks þegar búið er að taka útflutningsgjaldið, sem rennur í ríkissjóð, þá er allt samanlagt gjaldið á útfluttum fiski orðið um 14 —15%. Það er því engin furða, þótt menn farni yfir því, að hægt sé að létta af þeim verulegum hluta af öllu þessu gjaldi. En á hinn boginn heggur það skarð í ánægjuna, ef svo er, að hæstv. stj. ætlar á einhvern hátt að vanrækja það hlutverk, sem henni með réttu ber í þessum efnum, því að það er auðvitað, að þessi tilgangur, að viðhalda, auka og tryggja markaðinn fyrir saltfiskinn, er svo nauðsynlegt verk, að menn reyna jafnvel að þola mjög þungar skattaálögur í þessu skyni, til þess að missa ekki markaðinn. Þess vegna gera þessar brtt., sem hér liggja fyrir, ráð fyrir því, að í stað markaðs- og verðjöfnunarsjóðs, sem farið er fram á að lagður verði niður, komi sjóður, sem á að heita fiskimálasjóður. Þessum sjóði á að afla tekna með tvennu móti. Í fyrsta lagi með því móti, að ríkissjóður leggur fram 1 millj. króna, sem hæstv. stj. er heimilt að taka að láni, eða jafngildi upphæðarinnar í erlendri mynt. Í þessu sambandi vil ég beina þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðh., hvernig hann skilji þessa lántökuheimild. Hann upplýsti, að af lántökuheimildinni, sem áður var til, einni millj., sé búið að nota hér um bil 600 þús. krónur. Nú vil ég spyrja, hvort meiningin sé sú, að taka 1 millj. kr. til viðbótar við þessar 600 þús. krónur, eða hvort hér er um endurnýjun á gömlu heimildinni að ræða, þannig að þetta gildi aðeins um það, sem eftir er af lántökuheimildinni. (Atvmrh.: Það er um endurnýjun á gömlu heimildinni að ræða). Ef svo er, þá skilst mér, að réttara hefði verið að taka upp það, sem eftir var af hinni lánsheimildinni, og veita svo stj. heimild til þess að taka þessar ca. 400 þús. kr., sem eftir eru af gömlu lánsheimildinni. Mig rekur minni til þess, að þegar þetta frv. var á döfinni á síðasta þingi, þá vildi ég koma því á, að heimild þessara l. minnkaði um þá upphæð, sem stj. notaði í þessum tilgangi af enska láninu. Af þessu varð samt ekki. En nú, þegar á að fara að gera upp í þessu efni, þá er sjálfsagt að binda lánsheimildina aðeins við það, sem eftir var af fyrri lánsheimildinni, ef það er ekki tilgangurinn að heimila hæstv. stj. að taka nýtt millj. króna lán. Fyrir utan þetta framlag úr ríkissjóði er svo heimilt að afla tekna í þennan nýja sjóð með því að leggja 1/2 —1/4 % gjald á útfluttan fisk og fiskafurðir, að vísu þó að undanteknum síldarafurðum. Hæstv. ráðh. hefir upplýst, að þetta gjald gati numið um 200 þús. kr. á ári, eða nánar áætlað 150 —220 þús. kr., og það er tekið fram í sömu málsgr. og talað er um 1/2 —3/4% gjaldið, að kostnað við störf fiskmálanefndar eigi eingöngu að greiða af þessu gjaldi. Mér hefir verið sagt, að fiskimálanefnd kostaði út af fyrir sig um 60 þús. kr. Svo það er laglegt skarð, sem hoggið er í þessar tekjur, ef 1/3 af þeim fer í kostnað við fiskimálanefnd. Það væri því kannske hyggilegra, eins og minnzt hefir verið á í umr. um þetta mál, að leggja niður þessa n. án þess að neitt verulega munaði um það, en fela í þess stað stjórn fisksölusamlagsins að fara með þessi mál, með einhverjum tilkostnaði að vísu, en miklu minni heldur en nú á sér stað. Þegar búið er að taka 1/3 af þessu gjaldi, sem ég nefndi áðan, og aðeins 2/3 eru eftir af því, þá finnst mér vera lítið fé eftir til þess að vinna að því verkefni, sem hér um ræðir. Ég er hræddur um, að hér sé um eintómar kákráðstafanir að ræða, og þetta 3/4% gjald verði að nýrri viðbót við útflutningsgjald á fiskinum, sem vissulega þyrfti frekar að létta af honum heldur en að hækka þannig. Ef það er á annað borð tilfellið, að horfin sé þörf fyrir gjald til þess að tryggja og auka og viðhalda markaðinum fyrir saltfiskinn, þá mun ég fyrir mitt leyti verða með till., sem ganga í þá átt að létta þessu gjaldi alveg af.

Ég hefi nú ekki ástæðu til þess að fara öllu fleiri orðum um þetta. En að lokum vil ég þó segja það, að mér finnst orka mikilla tvímæla, hvort rétt sé að bera flókið mál fram í því formi, sem hér er gert; það er vitanlega eðlilegt og sjálfsagt að bera fram frv. um þetta efni, sem fengi svo sínar venjulegu umr. í báðum deildum og nefndarmeðferð eins og önnur og miklu einfaldari mál eru von að fá. Annars minnir mig, að við fyrri hluta þessarar umr. hafi málinu verið frestað, vegna þess að n. ætlaði að athuga þetta mál, en það hefir ekkert heyrzt frá þessari n. viðvíkjandi þessum athugunum hennar, og verð ég því að telja það einkennilega meðferð á máli, ef einstakir hv. þm. — jafnvel þótt þeir kunni að hafa umboð frá hæstv. stj. í þessu efni — bera fram svo yfirgripsmikla till. sem hér um ræðir, sem á svo að ganga nefndarlaust og með eina umr. gegnum hvora deild.