14.11.1935
Efri deild: 69. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 450 í B-deild Alþingistíðinda. (555)

130. mál, fiskimálanefnd o.fl.

Jón Auðunn Jónsson [óyfirl.]:

Hæstv. atvmrh. sagði, að það væri alrangt hjá mér, að Sjálfstfl. hefði átt upptök að því að bera það í mál við stjórnarflokkana að leggja niður 6% útflutningsgjaldið. Þetta er alrangt hjá honum. Það var samþ. á fundi í Sjálfstfl. að fara fram á það, að þetta gjald yrði látið niður falla, af því grundvöllurinn fyrir því hefði raskazt og fulltrúar okkar í sjútvn. Nd. báru fram till. á fyrsta fundi í n. um að fella gjaldið niður. Sannar þetta afstöðu Sjálfstfl. og þarf ekki fleiri vitna við með það, en hinu get ég trúað, að hæstv. ráðh. þyki erfitt að afsaka þær blaðagreinar, sem birzt hafa í öðru dagblaði stj. undanfarið eftir hv. þm. S.-Þ. um þetta mál. (JJ: Ég er nú ekki byrjaður að tala við hv. þm. enn). Hæstv. ráðh. sagði, að þessi sparnaðartill. mín væri svo litið korn í mæli útgerðarkostnaðarins, að ekkert munaði um það. Það er nú svo, að margt smátt gerir eitt stórt, og ef allir hinir mörgu smáu útgjaldaliðir, sem á útgerðinni hvíla, halda áfram að vera til, þá getur það orðið til þess að gera út um það, hvort þessi atvinnugrein getur haldið áfram eða ekki. Hæstv. ráðh. talaði um kaupkröfur á hendur útgerðinni og taldi, að stjórnendur hennar hefðu gert henni mest ógagn með því að nota fé frá henni til húsabygginga og til þess að koma á stofn búskap. Þetta getur átt við í einstöku tilfellum hér í Rvík, en tæplega annarsstaðar. Hann þekkir víðar til en hér og veit, að þetta er satt, og það sýnir, að útgerðarmenn hafa neitað sér um að gera margt þarflegt, af því að þeir hafa viljað halda fénu í útgerðinni. Ég get sagt honum, það, að svo hefir það verið fyrir vestan. T. d. get ég glatt hann með því, að þegar ég veitti forstöðu togaraútgerð fyrir vestan, tók ég fyrir það ekki nema 6000 kr. á ári, og var það allur stjórnarkostnaðurinn. Af þessari upphæð borgaði ég skrifstofumanni 3000 kr. og fyrir ljós, hita o. fl. 1200 til 1500 kr. Ég þekki mörg dæmi um slíkan sparnað, en ég veit líka dæmi til þess, að hrúgað var upp ógnarháum gjöldum í stjórn útgerðarfélags, sem hann var við riðinn. Á ég þar við Útgerðarfélag Ísfirðinga. Þar komst stjórnarkostnaðurinn upp í 7000 kr. á ári á hvern bát. (PM: Hvað voru bátarnir margir?). Þeir voru sjö. En þegar rætt er um slíka hluti sem þessa, þá er bezt að miða við það almenna, en ekki einstök dæmi, enda hitta þau a. m. k. eins vel þau fyrirtæki, sem hæstv. ráðh. hefir verið riðinn við, eins og önnur. Annars held ég, að engum blandist hugur um það, ef útgerðin á framvegis að fleyta því, sem á henni hvílir, þá verður hún að losna við mikið af þeim opinberu gjöldum, sem á henni hvíla, fleiri en útflutningsgjaldið. Það er vitanlegt, að margt af því, sem kaupa þarf til útgerðarinnar, er hátt tollað. Er það yfirgengilegt, sem ég hefi fært sönnur á, að sumar vörur til togaraútgerðarinnar eru skattlagðar með yfir 50% háum tolli.

Hæstv. ráðh. minntist á fisksölusamlagið og þær breytingar, sem það hefði tekið eftir I. frá 29. des. s. l. Með þeim l. var þeim, sem vildu sprengja samtök fiskútflytjenda, gefið undir fótinn með að taka upp grúppusystem, en hæstv. ráðh. sá þann kost vænstan að hverfa frá þeirri stefnu og með bráðabirgðal., sem hann gaf út í janúar, fól hann fisksölusamlaginu alla fisksöluna. Menn bjuggust við, að fresturinn, sem gefinn var með bráðabirgðal., yrði notaður til þess að koma á mörgum útflytjendum, en sem betur fór sá hæstv. ráðh. að sér í tíma. Hann sá, að hér var komið út á skakka braut, og gekk inn á það í samráði við þá menn, sem stóðu að sölusambandinu, að færa hámarkið úr 75 í 65% og opna með því möguleika fyrir því, að Sölusambandið gæti starfað áfram. En það var vitað, að ef hæstv. ráðh. vildi ekki lækka þetta skilyrði og að öðru leyti styrkja aðstöðu sölusambandsins, þá var ómögulegt, að það gæti lifað. Og það var ennfremur vitað, að margir vildu grúppusystemið heldur, og sumir af þeirri ástæðu, að það mundi leiða til ríkiseinkasölu innan skamms. Ég þakka hæstv. ráðh. fyrir stefnubreytingu hans, og það mega allir landsmenn beint eða óbeint vera honum þakklátir fyrir þá stefnubreyt., sem hann tók í apríl og maí s. l.

Hann sagði, að einhverjir menn í sölusambandinu hefðu viljað þröngva kosti hinna smærri fiskframleiðenda. Til þess að sýna fram á, hversu fjarstætt það er, þá vil ég upplýsa það, að aðeins tvo firmu misstu annað 11/2 og hitt 1 atkv. við breytinguna á sambandinu, miðað við það fyrirkomulag, sem gilti 1934. Annað þetta firma var fisksölusamlag Vestfjarða, og missti það 1 atkv. Annars er það mikil fjarstæða, að búið væri að ganga endanlega frá fyrirkomulagi fisksölusambandsins 1934. Ég fyrir mitt leyti neitaði að greiða atkv. um fyrirkomulagið fyrr en ég væri búinn að bera það undir mína umbjóðendur í fisksölusamlagi Vestfjarða, og margir aðrir tóku í sama streng. Það hefðu því getað orðið breytingar á fyrirkomulagi S.Í.F. eftir að búið var að ræða lög þess í einstökum héruðum.