14.11.1935
Efri deild: 69. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í B-deild Alþingistíðinda. (557)

130. mál, fiskimálanefnd o.fl.

Sigurjón Á. Ólafsson [óyfirl.]:

Það eru nokkur ummæli í ræðu hv. þm. N.-Ísf., sem gefa mér tilefni til að segja nokkur orð. — Hið fyrsta, sem stakk mig í ræðu hans, var það, að hann var að tala um, að kostnaðurinn við íslenzka útgerð, og þá sérstaklega vinnukostnaðurinn, hefði gert útgerðarmönnum svo þungar búsifjar, að svo væri nú komið sem komið væri fyrir útgerðinni. — Ég veit ekki, við hvað hv. þm. átti, en það kom þó fram nokkru seinna, að hann átti raunverulega við verkalýðinn í landinu og það, að hann hefir leyft sér á undanförnum árum að gera nokkrar kröfur til þess að geta lifað lífi sínu við fiskveiðar hér á landi. Það er einmitt út af þessu, sem ég tók til máls. — Hv. þm. fór að vísu ekki nánar út í það í fyrri ræðu sinni, en kom nánar inn á þetta í hinni síðari. Hann sagði, að margir útgerðarmenn hefðu orðið að neita sér um margt þarflegt til þess að geta staðið við skuldbindingar sínar. Heyr á endemi! Ég hefi aldrei þekkt útgerðarmann, sem hefir neitað sér um nokkurn hlut, sem talin eru lífsþægindi, hvernig sem útgerðin hefir gengið. Ég veit ekki, hvað það er, sem þessir menn hafa neitað sér um. Það hefir verið reynslan, að útgerðin hefir, því miður, oft verið rekin með halla, og þá hefir orðið að taka lán úr sameiginlegum sjóði þjóðarinnar til rekstrarins, og svo þegar ekki er hægt að standa í skilum, — hver er það þá, sem ber hallann?

Er það ekki þjóðin í heild? Og í flestum tilfellum fara útgerðarmennirnir heilskinnaðir út úr þeim leik. Ég get tilfært mörg dæmi til sönnunar því, að ég fari hér með rétt mál. Það er reynslan, að þegar illa gengur, þá bitnar það fyrst og fremst á þeim, sem gefið hafa líf sitt og starf í þágu þessa atvinnurekstrar, en það eru bæði sjómenn og þeir, sem vinna að framleiðslunni í landi. Hv. þm. var að minna á, hvað hann hefði á sínum tíma tekið lítið fyrir sitt starf við rekstur togaraútgerðar fyrir vestan og nefndi í því sambandi 6000 kr., sem hann hefði fengið fyrir það. Mig furðar ekkert á þessu. Það hefir verið svo með einstaklingstogararekstur hér, að þeim hefir verið komið til framkvæmdarstjórnar í skrifstofu annara fyrir lægri upphæð, enda er umsjón með rekstri eins skips, að því er ég bezt veit, ekki svo tímafrek, að þetta sé ekki sæmileg borgun fyrir það, ekki sízt þar sem hv. þm. mun hafa haft þetta sem algert aukastarf og hafa haft fullkominn atvinnurekstur með þessu starfi. (JÁJ: Eins og hvað?). Fisksölu o. fl. — Þá vildi hann færa sönnur fyrir sínu máli með því, að ekki væri betra umhorfs, ef farið væri að leggja í kostnað hjá fyrirtækjum, sem væru einstaklingseign. Það er vitanlegt, að samvinnufélag Ísfirðinga hefir, eftir upplýsingum, sem ég hefi aflað mér hjá manni, sem er þessu kunnugur, borgað 7000 kr. á ári fyrir skrifstofuhald og framkvæmdarstjórn. Þessi maður sagði, að hér væri farið með tölur, sem væru helber ósannindi, því að síðastl. ár hefðu framkvæmdarstjóralaun og skrifstofulaun við þessa útgerð verið 13 þús. kr. Ég hygg, að þessar tölur séu réttar, og vil að þær standi í þingtíðindunum eins og hinar tölurnar, sem ég álít helber ósannindi. Ég ætla ekki að vekja hér miklar deilur um það, hvaða ósanngjarnar kröfur, hafi verið gerðar til atvinnurekenda. Ég get ekki vitnað til nema einnar tegundar útgerðar og þessara tveggja togara, sem þar eru reknir, en á þessum fiskiflota öllum er hlutarráðning og hefir verið frá byrjun, en það eru sem sé sanngjörn lán, sem á útgerðinni hvíla. Hafa menn svo veitt því eftirtekt, hvernig þetta gengur? Það gengur þannig, að menn fá meiri hlut eftir því sem betur aflast, og meira fyrir aflann eftir því sem betur selst. hér getur því ekki verið um neinar ósanngjarnar kröfur að ræða. Það er víst, að hér á landi er þessi hlutarráðning algengust, og sé þetta óeðlileg byrði, þá veit ég ekki, hvernig á að launa starfsfólki. — Annað atriði, sem ég vildi ræða um við hv. þm., er það, þegar hann var að bera saman, hvað íslenzkir fiskimenn fá fyrir fisk sinn og hvað norskir fiskimenn fá fyrir sinn fisk. Hv. þm. segir, að ísl. fiskimenn fái 33 kr. fyrir aflann upp úr sjónum. Ég hygg þó, að hann eigi við hausaðan og slægðan fisk, en það svarar til þess, að þeir fái 8 —9 aura fyrir hvert kíló. Það er að vísu lágt, en því má ekki gleyma, að haus og lifur fylgir og bætir það upp hlut fiskimannsins. Þetta er verðlagið miðað við það, sem er fáanlegt fyrir fiskinn á innlenda markaðinum. En þegar farið er að bera okkur saman við Norðmenn, þá má fullyrða, að ástandið á undanförnum árum hefir sízt verið betra þar. Þó að ég hafi ekki verið í Noregi, þá hefi ég fylgzt með því Ástandi, sem er meðal norskra fiskimanna, í gegnum þau blöð og þau skrif, sem hingað hafa borizt. Ég verð að segja, að aum eru kjör íslenzku fiskimannanna, en lakari reynast þó yfirleitt kjör hinna norsku fiskimanna. Og það liggur eðlilega í því, að þeir verða að búa við afskaplega lágt fiskverð. Þó varð einhver breyting á þessu síðastl. ár, sem stafaði af því, að það var lítill afli við Lofoten og verðið hækkaði þar af leiðandi, svo að hægt var að fá fyrir hausaðan og slægðan fisk frá 10 og upp í 12 kílógr., en þó var almennast 11 au. kílógr. Þetta táknar, að það er þá 56 kr. fyrir hausaðan og slægðan fisk; og þegar gengismunur er reiknaður með, verður þetta ca. 50 kr. Það má taka fram, að þetta verð er mjög óvanalegt í norskum veiðistöðvum, hvort sem þetta stafar nú af aðgerðum norskra stjórnarvalda að einhverju leyti, en þau gera mikið til að létta undir með fiskiveiðunum, jafnvel leggja fram fé af opinberum sjóðum til að bæta upp fiskverðið, og svo hitt, að meira er boðið í fiskinn heldur en venjulega. Slíkt er auðvitað ekki hægt að taka sem algilda reglu í þessu efni. Ég hygg, að hv. þm. hafi eiginlega gert rangan samanburð á norskum og íslenzkum fiskimönnum. Það eru nú því miður ekki miklar líkur til þess, að fiskverðið hækki, nema einhver óeðlileg oft gripi hér inn í eða að stór styrjöld verði til að hækka verðið. En það, sem við verðum að gera, er að vinna fyrir markaðinn í öðrum löndum, og þá einnig öðrum löndum þar sem við höfum ekki haft sölu áður. Það er vitanlegt, að það kostar tíma og mikla fyrirhöfn að afla nýrra markaða, og verður ekki gert nema til þess sé fé fyrir hendi. Ég ætla ekki að fara út í þá hlið málsins, sem snýr að fyrri tímum, heldur láta mér nægja að líta á núv. ástand og það, hvað nauðsynlegt er að gera. Það þýðir ekki að vera að reyna að blekkja sjálfan sig. Okkur verður að vera það ljóst að við verðum að leggja á okkur ýmsar byrðar til þess að gera okkur mögulegt að lifa.

Ég skal svo ekki fjölyrða um þetta frekar, en ég vildi ekki láta ummælum hv. þm. um verkafólk vera ómótmælt á Alþ.