15.11.1935
Efri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 463 í B-deild Alþingistíðinda. (562)

130. mál, fiskimálanefnd o.fl.

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Ég kvaddi mér hljóðs út af því, sem hæstv. atvmrh. sagði um möguleika þá, sem hann hefði til þess að ná aftur samvinnu við Sjálfstfl. í utanríkismálanefnd. Hann sagði, að Sjálfstfl. hefði sett fram tvær kröfur, en hann fór ekki rétt með, hverjar þær voru. Hann sagði, að það hefði annarsvegar verið það, að fá yfirlýsingu, sem tryggði það, að þetta kæmi ekki fyrir aftur, og hinsvegar, að fram færi réttarrannsókn. Þessar kröfur voru alls ekki settar fram af okkur, þegar við slitum samvinnu í utanríkismálanefnd. Fyrri krafan var að vísu gerð, að sá ráðherra, sem með utanríkismál fer, gæfi skýrslu, sem sýndi, hvernig málið hefði gengið til. Og hinsvegar var krafa um það, að hann gerði sitt til þess að sjá um, að slíkt kæmi ekki fyrir framvegis, en það var ekki nein krafa um, að réttarrannsókn færi fram. Hæstv. ráðh. sagði, að hann gæti vitaskuld ekki gefið skýrslu um það, sem skeð hefði áður en hann varð ráðh. En hann hefir væntanlega sett sig það inn í málið eftir að hann varð ráðh., að hann hafi vitað, hvað hann samþykkti og gekkst fyrir að væri endurnýjað, og það er mjög sennilegt, að hann hafi kynnt sér málið svo frá upphafi, að hann geti gefið skýrslu um það, sem hann veit um það. Það er vitanlega ekki verið að krefjast þess, að hæstv. ráðh. segi frá neinu ríkisleyndarmáli, heldur því, sem fyrir liggur. Það er rétt eins og þegar prestur er beðinn að gefa skírnarvottorð, en hann hefir kannske verið í annari heimsálfu, þegar barnið var skírt, en hann gefur vottorðið bara eftir bókunum.

En það, sem mér finnst aðalatriðið í þessu máli, er að þingflokkarnir og þeirra fulltrúar standa allir jafnt að þessu máli. Það ódrengilega í þessu máli var, að í þessari grein, sem hér um ræðir, var reynt að velta ábyrgðinni yfir á einn ákveðinn flokk. En til þess að samvinna geti haldizt, má ekki gera það.

Um réttarrannsóknina var allt annað mál. Það var eftir að samvinnunni var slitið og áfram heldu skrif um þetta mál, að Ólafur Thors — ekki sem þm. eða form. Sjálfstfl., heldur í nafni sínu og bróður síns — gerði þá kröfu til hæstv. ráðh., að hann fríaði bróður hans, sem var sendimaður, með réttarrannsókn undan því, sem var verið að bera á hann. Þetta kom fyrst fram eftir að samvinnu var slitið, og það var því alls ekki sú krafa, sem sett var fram við það tækifæri. Annars virtist mér hæstv. ráðh. taka svo undir þessa ósk mína — því að hann einmitt þvert á móti tók upp málstað hv. þm. S.-Þ. og vitnaði í það, sem hann sagði í þessu máli —, að ég býst við, að hann óski ekki eftir því, að þessa samvinna takist aftur. Hæstv. ráðh. sagði, að það hefði alls ekki með lögunum, sem samþ. voru á síðasta þingi um fisksölusamlagið, verið stefnt til þess að hafa „gruppusystem“ á þeim málum. En ég veit þá ekki, hvað hefir falizt í því, þar sem beinlínis er ákveðið, að löggilda skuli eftir ákveðnum reglum svo og svo marga til þess að annast útflutning á fiski. Það er einmitt það, sem kallað hefir verið „gruppusystem“. En annað mál var það, að hæstv. ráðh. beygði út af þessari braut og kom á móti fisksölusambandinu, sem ekki vildi breyta sinn skipulagi. Gaf þá hæstv. ráðh. út ný lög, sem fisksölusambandið vildi ganga að. En ég vil ekki koma með neina spádóma um, hvernig hefði verið tekið undir þessi lög ef þau hefðu verið einhvernveginn öðruvísi en þau voru. Ég get ekkert vitað um það, og hæstv. ráðh. ekki heldur. En hitt er annað mál, að hæstv. ráðh. gerði rétt, er hann kom á móti fisksölusambandinu til þess að það gæti haldið áfram sínu starfi.

Af því að þetta var aðeins stutt aths., skal ég ekki fara út í fleira af því, sem fyrir lá í ræðu hæstv. ráðh. Aðeins vil ég þó minnast á, að þar sem hæstv. ráðh. var að telja upp hin miklu afrek fiskimálanefndar, þá sýndi ég fram á, að sumt af því hefði verið orðað áður, eins og t. d. með herðingu á fiski. Og þar sem hann talaði um, að leitað hefði verið markaða í öðrum löndum, þá hefði það vitanlega verið gert af hverjum þeim, sem hefðu átt að annast þessa verzlun. En það var engin ástæða til að vera að kasta stórfé til slíkra markaðsleita meðan beztu markaðirnir voru opnir fyrir okkar fisk. En þegar takmörkunin kom á Spánarmarkaðinum. þá hlaut hver, sem átti að fara með þessi mál, að leita að nýjum leiðum. Fiskimálan. gerði þetta af því að henni var falið það, en það má ganga út frá því, að þeir sömu menn, sem unnu upp Spánar-, Ítalíu og Portúgalsmarkaðinn, mundu hafa leitað að nýjum leiðum þegar herti að. Það er ekki svo sem menn hafi haldið að sér höndum þangað til fiskmálanefnd kom fram. Það var fyrir nokkrum árum gerð tilraun, sem kostaði hundruð þúsunda, til þess að koma hraðfrystum fiski til Suður-Ameríku. Þetta hefir verið látlaust stríð hjá okkur um fiskmarkaðinn, og það er ekki nema eðlilegt, að fiskimálanefnd tæki upp þetta sama stríð. En það er villandi frásögn að láta líta svo á, sem allur þessi kraftur hafi komið í fisksöluna um leið og fiskimálanefnd var sett á stofn.