15.11.1935
Efri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 470 í B-deild Alþingistíðinda. (565)

130. mál, fiskimálanefnd o.fl.

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

Það eru aðeins skýringar vegna ummæla, sem hér hafa fallið. og örfáar upplýsingar, er ég tel rétt að geta út frá því. — Ég skal ekki ræða við hv. 1. þm. Reykv. um skírnarvottana. Því atriði hefi ég áður að fullu svarað, og vísa aðeins til þess.

Það hafa ýmsir haldið því fram, að Spánarsamningarnir, sem gerðir voru vorið 1934, hafi verið endurnýjaðir um haustið sama ár fyrir árið 1935. Þetta er ekki rétt. Það rétta er, að samningunum var ekki sagt upp, en það eina, sem gerðist, var að Sveinn Björnsson sendiherra fór til Spánar í því skyni að fá tryggðan samkv. samningunum sama kvóta fyrir fiskinnflutning árið 1935 og við höfðum árið 1934. Annað gerðist ekki.

Að því er snertir ummæli, sem fallið hafa viðvíkjandi Union og meðferð laga um fiskimálanefnd frá síðasta þingi. skal ég ekki fjölyrða þar um. En ég vil aðeins leiðrétta ummæli hv. 1. þm. Skagf., er hann sagði, að ég hefði á síðasta þingi viðhaft þau orð eða fullyrðingar, að Union myndi drepast, þar sem hver höndin væri upp á móti annari. Þetta er alls ekki rétt. Það, sem ég sagði, og ég man vel, hvað ég sagði þá, enda hægt að sjá það í umr. frá því þingi, var á þá leið, að ef Union dæi eftir að lögin væru sett, þá væri henni ekki lífvænt og ekki lífs auðið, vegna þess að henni væru ekki tryggð sérréttindi. Þetta hefir í raun og veru algerlega sannazt. Ég hirði ekki um að gera samanburð á Union eins og hún var og fisksölusamlaginu eins og það er nú; við vitum allir, að það er gerólíkt. Union var áður aðeins samtök 3 manna, sem tóku fisk í umboðssölu. mér liggur við að segja með valdi, þ. e. hvort sem menn vildu eða vildu ekki. Nú er þetta félagsleg samtök meiri hl. allra fiskútflytjenda, þar sem réttur allra meðlima er tryggður með löglegri stjórn og félagslegum samþykktum og með jöfnun atkvæðamagns. Engar hliðstæðar tryggingar voru til fyrir þátttakendur eftir stofnun Union 1932. Auk þessa er nú ríkisstj. tryggð umsjón með starfi þessa félagsskapar, þar sem tveir stjórnarmenn eru nú tilnefndir af henni.

Ég skal svo ekki teygja tímann frekar, en úr því að á þetta var minnzt, vildi ég enn einu sinni benda á þessar staðreyndir; annars nægir mér að vísa til fyrri ummæla minna í þessu máli.