15.11.1935
Efri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 476 í B-deild Alþingistíðinda. (569)
130. mál, fiskimálanefnd o.fl.
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:
Ég vil með nokkrum orðum svara þeirri fjarstæðu, er hv. 1. þm. Reykv. hélt fram, að mörg hundruð þúsund króna kostnaður hefði hrúgazt á þann fisk, sem sendur var í tilraunaskyni til Póllands. Fiskimálanefnd hefir hingað til lagt fram vegna þessa 42 —43 þús., en hún var í helmingafélagi um þessa sendingu við íslenzkan mann, búsettan í Khöfn. Annars mun bráðlega verða birt fullkomin skýrsla um málið. Hitt er rétt, að fiskurinn var geymdur í skipinu í sumar, og var það vegna þess, að ekki var dýrara að geyma hann þar en í landi. Fiskurinn kom á óheppilegum tíma, og stafaði það af því, að fiskimálanefnd hafði fengið rangar upplýsingar. Tilraunin tókst því miður en skyldi, en læra má af þessari reynslu, þótt hún yrði nokkuð dýr.