15.11.1935
Efri deild: 70. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 479 í B-deild Alþingistíðinda. (571)

130. mál, fiskimálanefnd o.fl.

Magnús Guðmundsson:

Ég er hissa á því, að hv. þm. S.-Þ. skuli ekki vilja viðurkenna, að það er ómögulegt, að niðurstaða samninganna á Spáni hafi verið grundvöllur bráðabirgðal. frá 26. maí 1934, af þeirri einföldu ástæðu, að þá var ómögulegt að vita, á hvaða grundvelli þeir yrðu reistir, þar sem samningarnir voru ekki gerðir. Þetta ætti hann þó að viðurkenna, því það er misskilningur hjá honum, að brbl. frá 26. maí hafi siglt undir fölsku flaggi. (JJ: Til hvers voru þau þá sett?). Þau voru sett vegna takmarkana á fisksölu okkar til viðskiptalandanna, samskonar og nú er á kjötsölunni; það var ástæðan.

Þá get ég ekki heldur viðurkennt, að fyrrv. stj. hafi verið Framsfl. óviðkomandi. Forsætisráðherrann var þó í flokknum þegar brbl. voru sett og samningurinn gerður á Spáni, og hafði verið þar frá upphafi, þó hann færi úr flokknum nokkru seinna. Ég get að vissu leyti tekið það til mín, sem hv. þm. sagði um ofsókn gegn Helga Briem og hann, sem á að hafa verið lagt við því, að hann ferðaðist um markaðslöndin, en hv. þm. veit, að ferðalag hans strandaði á því, að heimild vantaði fyrir fé til slíks, og fór þó kostnaður vegna þess langt fram úr áætlun. Það, sem hv. þm. kallar hér bann, er því ekkert annað en viðleitni stj. til þess að halda sér við fjárl. — Um Kúlu-Andersen þarf ég ekki að tala. Ég hefi áður tekið það fram, að hann hefir aldrei farið með neitt umboð fyrir mig og að ég hefi hvorki heyrt hann eða séð. (JJ: Hann fékk þó aurana). Ekki frá mér.