27.11.1935
Neðri deild: 84. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (581)

130. mál, fiskimálanefnd o.fl.

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:

1.—3. gr. þessa frv. gengu hér í gegnum þessa hv. þd. og hafa ekki tekið neinum breyt. í Ed., og sé ég ekki ástæðu til að ræða um þær hér. En eins og vikið hefir verið að, þá eru 4., 5. og 6. gr. settar inn í frv. í Ed., og er meginefni þeirra það, að fiskskatturinn til markaðs- og verðjöfnunarsjóðs, sem svo hefir verið nefndur, 6% af verði útflutts fiskjar, er felldur niður, en í staðinn kemur ákvæði um, að stofnaður verði fiskimálasjóður með 1/2—3/4% af verði útfluttra fiskiafurða. — Mér þykir rétt að greina nokkuð frá sögu fiskskattsins í stuttu máli í tilefni af þeim till., sem hér liggja fyrir. — Eins og hv. þdm. er kunnugt, var í sambandi við Spánarsamningana vorið 1934, þegar það kom í ljós, að fiskútflutningurinn var mjög takmarkaður til Spánar ákveðið að leggja þetta gjald á útfl. saltfisk, og átti það að renna í markaðs- og verðjöfnunarsjóð. Þetta var þó ekki ákveðið með sérstökum lögum, heldur var því hagað þannig, að útflutningsleyfi á saltfiski voru bundin því skilyrði í maímán. 193l, að útflytjendur áttu að greiða 5 kr. gjald af hverju skp. af verkuðum fiski og 20 kr. af hverri smálest saltfiskjar í markaðs- og verðjöfnunarsjóð. Ég hygg, að þessi skattur hafi verið ákveðinn með ráðnum huga af fyrrverandi ríkisstjórn og í samráði við þá menn, sem störfuðu að Spánarsamningunum, og þá, sem stöðu fyrir sölu á saltfiskinum.

Þegar núv. ríkisstj. tók við völdum í júlílok 1934, var það komið í ljós, að ýmsir fiskeigendur voru mjög óánægðir með skattinn og undu þeirri kvöð illa. Mér er óhætt að segja, að stjórn samb. ísl. fiskframleiðenda óttaðist, að skatturinn fengist ekki greiddur, af það ætti að innheimta hann án lögfestingar. Voru þá gefin út bráðabirgðalög í ágústmán. 1934 og gjaldinu breytt þannig, að í staðinn fyrir, að áður hafði verið greitt 5 kr. af hverju skp. af verkuðum saltfiski, án tillits til verðmætis fiskjarins, þá var í brbl. ákveðið 5 kr. gjald af hverju skp. til jafnaðar. Og var þá greitt hærra gjald af dýrasta fiskinum, en ekki nema 2 kr. af skp. á verðminnsta fiskinum. Á haustþinginu 1934 voru bráðabl. samþ. með samkomulagi allra þingflokka, og breytt þannig, að fiskútflytjendum var gert að greiða 6% af saltfiskverðinu í markaðs- og verðjöfnunarsjóð. Mig minnir, að einn þm. í Nd. greiddi ekki atkv. um frv., hv. þm. V.-Húnv., en að öðru leyti voru allir þm. því fylgjandi.

Þetta er í stuttu máli saga fiskskattsins, að svo miklu leyti, sem hún verður sögð út frá því, sem gerzt hefir með lagasetningu og í opinberum framkvæmdum.

Hv. þm. Vestm. sagði um þá ákvörðun stjórnarflokkanna, að létta af þessu gjaldi, sem ég gaf yfirlýsingu um hér í d. á eftir lokuðum fundi í sameinuðu Alþingi, að sér hefði komið það mjög ókunnuglega fyrir sjónir, þar sem samningar hefðu þá staðið yfir á milli mín og form. Sjálfstfl. um afnám skattsins. Ég verð nú að segja hv. þm. það, að milli mín og form. Sjálfstfl. voru engir samningar um þetta. Hitt er rétt, að hv. þm. G.-K. tjáði mér, að uppástunga í þessa átt hefði komið fram í sjútvn. Nd. í frv.formi frá hv. 6. þm. Reykv., en það var þá alls ekki lagt fram opinberlega í þd., en þar var það svo flutt nokkru síðar. Þessu frv. var þá þegar svarað af stjórnarflokkunum með öðru frv., um að markaðs- og verðjöfnunarsjóður skyldi alveg lagður niður. Kom þá greinilega í ljós, að ágreiningurinn var um það, hvort ætti að halda áfram starfsemi markaðs- og verðjöfnunarsjóðs. Samkv. frv. hv. 6. þm. Reykv. átti að halda honum við með jafnháum gjöldum til sjóðsins og síðastl. ár, aðeins með þeirri einu breyt., að það átti að fella niður gjaldið af fiskinum, en greiða það aftur á móti úr ríkissjóði til markaðs- og verðjöfnunarsjóðs og verja til þess allt að helmingi af tekjum áfengisverzlunarinnar. Auðvitað yrði þetta greitt úr ríkissjóði, þó það sé talið að vera af tekjum áfengisverzlunarinnar. Þetta er meginmunurinn á frv. stjórnarflokkanna og frv. Sjálfstfl. — Þeir telja, að ekki verði komizt hjá því að greiða gjöld til sjóðsins svipað og verið hefir, en vilja létta þeim af saltfiskinum og leggja þau á landsmenn almennt.

Aftur á móti er tilgangurinn sá samkv. frv. stjórnarflokkanna, að leggja niður markaðs- og verðjöfnunarsjóð og fella að mestu leyti gjaldið af fiskinum. Þó er í þessu frv. gert ráð fyrir, að greitt verði 1/2—3/4% af verði útfluttra fiskafurða til fiskimálasjóðs; og má ætla, að það nemi samtals e. 150—200 þús. kr. á ári. Að vísu er ekki hægt að fullyrða neitt um það, vegna þess að það fer svo mikið eftir því, hvernig afurðirnar seljast.

Ef frv. verður samþ., þá má ætla, að til umráða verði það fé, sem ríkisstj. er heimilað að útvega til láns samkv. 5. gr. Af þeirri 1 millj. króna lánsheimild, sem stj. var veitt á síðasta þingi til markaðsleitar fyrir sjávarafurðir, hefir nú þegar verið notað til lántöku sem nemur 592 þús. kr., og hefir fiskimálanefnd það til meðferðar; af þessari upphæð var búið að nota nú um miðjan mánuðinn 225 þús. kr., og eru þá eftir ónotaðar um 370 þús. kr. Ennfremur eru eftir 410 þús. kr. af lánsheimild þeirri, sem veitt var í fyrra, og eru þá samtals eftir til ráðstöfunar af þeirri 1 millj. kr., 780 þús. kr., sem ættu að vera fyrir hendi, þegar á þarf að halda. Auk þess er gert ráð fyrir, að fiskimálasjóður fái tekjur af 1/2—3/4% gjaldinu, sem nemi 130—200 þús. kr. Við teljum rétt, að sjóðurinn fái þessar tekjur, þar sem honum verður varið til þess að greiða fyrir sölu sjávarafurða, afla þeim nýrra markaða, reyna fjölbreyttari verkunaraðferðir og bæta yfirleitt meðferð varanna, svo sem nánar er tilgreint í þessu frv.

Hv. minni hl. sjútvn. flytur 2 brtt. við frv. Önnur þeirra hnígur að því, að fellt verði úr frv. ákvæðið um 1/2—3/4 gjald af fiskafurðum til fiskimálasjóðs. Ég verð nú fyrir mitt leyti að líta þannig á, að það sé ekki ósanngjarnt, þrátt fyrir þá erfiðu tíma, sem nú eru, að sjávarútvegurinn leggi þetta fram, þegar það er vitað, að úr ríkissjóði verður lagt fram fé á móti þessu til helminga, auk þess ber að líta á það, að þetta gjald, sem hér er farið fram á, verður ekki lagt á saltfiskinn einan, heldur og á aðrar fiskiafurðir; en sumt af þeim er, eins og kunnugt er, í allháu verði og hefir nokkuð öruggan markað. Og það er ekki líklegt, að þetta 1/2—3/4% gjald hafi nein áhrif til lækkunar á því verði. Það eru meiri líkur fyrir hinu, að þetta gjald lendi ekki að öllu leyti á útgerðarmönnum.

Hin brtt. hv. minni hl. sjútvn. fer fram á það, að í staðinn fyrir fiskimálanefnd og verkefni hennar samkv. þessu frv. komi sölusamb. ísl. fiskframleiðenda. Ég hefi áður rætt um þetta atriði í hv. Ed., og einnig hér í d., og get látið mér nægja að vísa til þess. En ég vil þó benda á það, að sölusamb. ísl. fiskframleiðenda er stofnun, sem ómögulegt er að vita um, hversu lengi starfar, eða á hvern hátt. Hinsvegar er þannig um búið, að fiskimálanefnd er skipuð til þess samkv. lögum að gegna þeim verkefnum, sem eru fullkomlega samrýmanleg þeim störfum, er ákveðin eru í 5. gr. þessa frv. En S. Í. F. er einungis ætlað að fara með saltfiskverzlunina. Hún verður að gefa sig alla við því, enda er það fullkomið verkefni. Það er óhjákvæmilegt að breyta til um, verkunaraðferðir á fiskinum og leita nýrra markaða fyrir hann. Ég tel því, að ekki verði hjá því komizt, að fiskimálanefnd hafi þessi breytilegu störf með höndum, og tel því sízt til bóta að samþ. þessa brtt. Ræð ég hv. d. til að fella hana umsvifalaust. Ennfremur vil ég ráða hv. þdm. til að fella brtt. um að afnema gjaldið til fiskimálasjóðs, þar sem þetta er ekki nema 1/2 —3/4% af fiskverðinu og nemur ca. 150—200 þús. kr. árlega. Má vænta, að fyrir þetta fé megi framkvæma ýmislegt til gagns fyrir sjávarútveginn, ekki sízt þegar þess er gætt, að til viðbótar því verður varið í sama tilgangi ríflegri upphæð of því lánsfé, sem ríkisstj. er með þessu frv. veitt heimild til að útvega.