28.11.1935
Neðri deild: 85. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (593)
130. mál, fiskimálanefnd o.fl.
Jóhann Jósefsson [óyfirl.]:
Það má nú segja, þegar hlustað er á hina löngu ræðu hv. 2. þm. Reykv.: Mikill spámaður er hér upp risinn. Annars hefir þessa manns verið getið meira að öðru heldur en að hann væri líklegur til þess að hafa forustu í því að koma fiskinum í peninga. Hann hefir verið ötull til forustu í því að rífa niður þá menn, sem að framleiðslu fiskjarins hafa staðið.
Ég ætla mér ekki að blanda mér inn í deilu þm, sem risið hefir milli hv. þm. G.-K.og hv. 6. þm. Reykv. annarsvegar og hins mikla manns, hv. 2. þm. Reykv., hinsvegar. En mig langar til þess að beina þeirri fyrirspurn til hæstv. forseta, hvort honum finnst það sæmandi að hlusta á það hér á Alþ., að ráðizt sé á utanþingsmenn með niðrandi orðum og uppnefnum, án þess að forseti sjái svo mikið sem ástæðu til þess að depla augunum. Maður hefir að vísu verið sjónarvottur að því á undanförnum árum, að virðing Alþ. fer minnkandi, og það eru augljósar ástæður til þess að mörgu leyti. En mér virðist, að það sé einn augljósasti vottur þess, hversu mjög þessari samkomu hefir hnignað, að það á sér stað óátalið af hæstv. forseta dag eftir dag, að menn, sem ekki eiga hér sæti, eru lítilsvirtir og svo að segja svívirtir fyrir störf sín í opinberum málum.
Við hv. 2. þm. Reykv. vil ég segja það, að mér, þykir hann á undarlegri braut, ef hann álítur það réttmætt að vekja þann ugg hjá þinginu, að það sé eitthvert ósamkomulag innan stjórnar Sölusambandsins. Ég verð að segja það, að ég kannast ekki við þetta ástand, og það er hætt við því, að hv. 2. þm. Reykv. hafi verið að hugsa um aðra mikilsverða stofnun hér á landi, þar sem mikið óstand er innan stjórnarvébandanna.
Hv. um. gaf mér þann vitnisburð, að ég kæmi sjaldan á fundi í stjórn S. í. F., og má það að vísu rétt heita, að ég hafi ekki komið á alla fundina. en svo er mál með vexti, að ég var kosinn í þessa stjórn meðan ég var erlendis í öðrum erindagerðum, og það voru liðnar margar vikur af starfstímabili S. Í. F., þegar ég kom heim. Hinsvegar hefi ég ekki látið undir höfuð leggjast að sækja fundi, þegar ég hefi fengið fundarboð, og svo margt fundi hefi ég sótt, að ég held, að ekki hefði getað farið framhjá mér þetta ósamkomulag, sem hv. 2. þm. Reykv. er að tala um, ef um slíkt væri að ræða. En það getur á engan hátt talizt ósamkomulag, þó allir séu ekki á einu máli eða greiði ekki atkv. eins, t. d. um það, hvort bjóða eigi út í dag eða á morgun fyrir þetta verð eða hitt. Það er að mínu viti algerlega út í bláinn að vera að tala um ósamkomulag innan stj. S. Í. F.
Hv. 2. þm. Reykv. hefir ráðizt hér dag eftir dag á varamann minn í stjórn S. Í. F., Jón Kjartansson, og fullyrt það, að hann hefði enga hæfileika til þess að starfa í þessari stjórn og kallað hann bitlingahít í því sambandi. Ég vil lýsa því fyrir hv. dm., á hverju hv. þm. byggir þennan sleggjudóm sinn um varamann minn. Hann byggir hann á því, að Jón Kjartansson sé ekki alinn upp við fiskvinnu né hafi rekið útgerð, en hann mun nú þó vera í stjórn eins útgerðarfélags. En látum það nú gott heita, að hv. 2. þm. Reykv. byggi þennan sleggjudóm sinn um varamann minn og hv. 6. þm. Reykv. á því, að þeir séu engir fagmenn í fisksölumálum. Og ef þetta á við um þessa 2 stjórnarnefndarmenn, hvað má þá segja um hv. 2. þm. Reykv. sjálfan? Hann er enginn fagmaður í fisksölumálum. M. ö. o., sá dómur, sem hv. 2. þm. Reykv. hefir kveðið upp um varamann minn í stjórn S. Í. F. og hv. 6. þm. Reykv., er um leið af hans eigin vörum felldur um hann sjálfan. Séu þeir bitlingamenn af því að þeir eru ekki fagmenn í þessum málum, þá er hv. 2. þm. Reykv. það engu síður. En sá stóri munur er á, að þessir 2 menn, Jón Kristjánsson og hv. 6. þm. Reykv.. eru kosnir í þessa stjórn af fiskeigendum, en hv. 2. þm. Reykv. er látinn þangað af ríkisstj. Ég get alls ekki látið það standa ómótmælt, að farið sé ómaklegum orðum um varamann minn; ég hefi enga ástæðu til að kvarta undan því, sem hann hefir gert, og ég hefi heldur engan meðstjórnarmanna hans heyrt segja, nema nú hv. 2. þm. Reykv., annað en að hann ynni starf sitt með trúnaði. Og ég er alveg undrandi yfir því, að menn, sem eru settir til opinberra starfa, skuli alveg að tilefnislausu nota þingsalinn til þess að lítilsvirða og svívirða samverkamenn sína, sem enga aðstöðu hafa til þess að bera hönd fyrir höfuð sér.