05.11.1935
Efri deild: 61. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 515 í B-deild Alþingistíðinda. (605)

129. mál, sala og útflutningur á ýmsum íslenzkum afurðum

Þorsteinn Briem [óyfirl.]:

Ég vil þakka hæstv. ráðh. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf um það, að reynt hefði verið að koma gjaldeyri þeim, sem fer til íslenzkra námsmanna í Þýzkalandi, yfir á „clearingkonto“, þó að það hefði ekki tekizt að fullu. En ég vænti þess líka, að hann vildi vinna að því, að sá gjaldeyrir, sem þýzkir ferðamenn nota. kæmist líka inn á „clearingkonto“. Og það var það, sem fyrir mér vakti í fyrri ræðu minni. Ég lít svo á, að iðnaðarvörukaupendurnir, eins og aðrir, sem vörur kaupa, eigi allt undir framleiðendunum, því að það eru framleiðendurnir, sem skapa verðmætin og eiga kröfu til að fá að selja þau þar sem bezt gegnir. Annars verð ég að leyfa mér að halda því fram, að iðnaðarvörukaupendur fái ívilnanir á kostnað framleiðendanna í þessu efni, og sé ekki tekið hið fyllsta tillit til hagsmuna framleiðendanna hvað þetta snertir, þá er hér um grímuklædda gengishækkun að ræða. En að sjálfsögðu teldi ég æskilegt, að framhjá þeim skerjum yrði siglt eins og kostur væri.

Að lítt athuguðu máli finnst mér ég geta fellt mig við þá till., sem komið hefir fram um það, að innflutnings- og gjaldeyrisnefnd hefði hönd í hagga með úthlutun á útflutningsleyfunum, ef framleiðendunum yrði tryggt þar nægilegt vald.