12.10.1935
Sameinað þing: 14. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2356 í B-deild Alþingistíðinda. (61)
Kæra um kjörgengi
Jónas Guðmundsson:
Ég skal ekki lengja umr. mjög úr því, sem komið er. En við mál hv. síðasta ræðumanns virðist mér fram komið nýtt viðhorf í málinu. Hv. 2. landsk. er sem sé ekki farinn úr Bændafl., að því er virðist. Flokkurinn virðist hafa misskilið málið, eins og líka kjörbréfan. Hann er í Bandafl. enn að eigin sögn, því að hann hefir ekki verið rekinn þaðan. A. m. k. liggja engin skjöl eða skilríki fyrir um það, að hann hafi verið rekinn. Þess verður að krefjast, að það komi skýrt fram, hvort hv. þm. er farinn úr flokknum eða ekki. Hér virðist vera um heimiliserjur að ræða innan Bændafl., og annað ekki. — Hitt er annað, að þegar til í þetta mál er komið, þá er eðlilegt, að rætt sé um það frá því sjónarmiði, hvaða afleiðingar slíkur ágreiningur sem þessi getur haft í framtíðinni. Hv. 2. landsk. er ekki eini aðili málsins, því að hér á þingi sitja nú 11 landsk. þm., og ef til vill fjölgar þeim enn seinna meir. Þetta tekur því til þeirra allra.
Í þessu sambandi hefir margt verið fært fram, en ég vil þó aðeins minna á þrjú af þeim atriðum, sem komu frá hv. 10. landsk. og hv. frsm. minni hl.
Í fyrsta lagi: Hv. 10. landsk. virðist líta á uppbótarþingsætin sem persónulega eign flokkanna. Hann heldur því fram, að landsk. þm. verði að haga sér eftir því, sem flokksstj. eða flokkurinn ákveður. Ef þetta er rétt, þá er um tvær tegundir þm. að ræða, aðra, sem bundin er vilja fámennrar flokksklíku, hvaða flokki sem hún kann nú að tilheyra. Þessi tegund þm. er algerlega réttlaus, því að samkv. skilningi hv. 10. landsk. eru þessir þm. sviptir rétti þeim, sem öllum þm. er veittur samkv. 43. gr. stjskr., þar sem tekið er fram, að þm. séu eingöngu bundnir við persónulega skoðun sína. En með hvaða valdi er þá þessi réttur tekinn af sumum þm.?
Hv. 10. landsk. sagði ennfremur, að uppbótarþm. bæru enga ábyrgð gagnvart ákveðnum kjördæmum. Hann ætti sízt að segja þetta, með tilliti til þess, hvernig hann er sjálfur kominn inn á þingið Landsk. þm. koma inn eftir því, hversu háa atkvæðatölu þeir fá í kjördæmunum, og ráða flokkarnir því engu um það hverjir komast að sem uppbótarþm. Einu þingm., sem flokkarnir bera algerða ábyrgð á eru þeir, sem raðað er á flokkslista. Á hinum bera kjördæmin meiri og minni ábyrgð. Við hv. 10. landsk., sem báðir erum komnir á þing með sama hætti, vitum þetta vel. Það er því rangt hjá honum, að uppbótarþm. séu ekki líka þm. ákveðinna kjördæma.
Eins og hv. 2. landsk. tók greinilega fram, gera kosningal. og stjskr. ráð fyrir því, að landskjörstj. úthluti uppbótarsætum milli flokkanna í hlutfalli við það, hvernig atkv. hafa fallið. Við annað er auðvitað ekki hægt að miða. Hvað vitum við t. d. um það, hvaða breyt. kunna að hafa orðið á hugsunarhætti þjóðarinnar frá því um síðustu kosningar? Það gæti t. d. vel hafa farið svo, að Bændafl. hefði tapað fylgi, en öðrum flokkum aukizt fylgi. En hvaða við væri í því að leggja þá ímyndun til grundvallar fyrir breytingum, sem gerðar væru á skipun þingsins? Landkjörstj. á að skipta milli flokka uppbótarsætum eftir því, sem réttast verður metið að kosningum afstöðnum, en hún getur auðvitað ekki fylgzt með þeim breyt., sem kunna að verða á fylgi flokkanna allt kjörtímabilið.
Ég vil, að þessu sé slegið föstu, því að ég er sjálfur einn af þeim, sem hér eiga hlut að máli. Alþfl. gæti t. d. dottið í hug að reka mig, af því að ég vildi halda fast við mína persónulegu skoðun í einhverju máli. Ég beini því hér með til landsk. fulltrúa Sjálfstfl., hvort þeir vilji eiga það yfir höfði sér, að fámenn klíka í Sjálfstfl. geti svipt þá þingdæmi hvenær sem hún vill losna við þá.
Ég þekki enga kosna samkundu, ekkert fulltrúaráð eða félagsstjórn, þar sem annað eins og þetta geti átt sér stað, þar sem allir meðlimirnir hafi ekki sama rétt. En hér á Alþingi er ætlazt til, að 11 þingmenn séu einskonar þrælar, en hinir frjálsir menn. Þessum 11 mönnum á svo að vera hægt að útskúfa eftir boði fámennrar klíku og fá nýja og auðsveipa þræla í staðinn. Hv. frsm. meiri hl. sýndi fram á það áðan, að engin ákvæði væru til í stjskr., sem réttlættu þetta, enda skil ég ekki, að nokkur þm. Sjálfstfl., nema þá hv. þm. V.-Sk., vilji verja slíkt athæfi sem þetta. (JAJ): Hvað er í brezka þinginu?). Við erum að tala um íslenzka þingið núna. Af því, sem haldið hefir verið fram, er aðeins eitt, sem ég get viðurkennt, að hafi við nokkur rök að styðjast. Það er tilvitnunin í 133. gr. kosningal. Hún hljóðar svo:
„Nú hefir Alþingi úrskurðað ógilda kosningu þingmanns, sem kjörbréf hefir fengið í kjördæmi eftir almennar alþingiskosningar, og uppkosning hefir farið fram (sbr. 142. og 143. gr.), og skal þá landskjörstjórn, ef samanlagðar atkvæðatölur þingflokka og þingmannaðala þeirra gefa nú ástæðu til slíks, leiðrétta fyrri niðurstöður um úthlutun uppbótarþingsæta, jafnvel þótt landskjörinn þingmaður missi við það umboð sitt.“
Þetta er eini staðurinn, þar sem ráð er fyrir því gert, að landsk. þm. missi umboð sitt, en þetta á aðeins við um uppkosningu í kjördæmi þegar eftir almennar kosningar, og þá er það ekki þingsins, heldur landkjörstjórnar að framkvæma slíkar leiðréttingar.
Ég vil endurtaka það, að frá mínu sjónarmiði nær það ekki nokkurri átt, að þm. séu því misrétti beittir, að þeim sé skipt í tvo hópa, þar sem annar hópurinn hefir fullt frelsi, en hinn er undir strangasta aga og kúgun. Kosningal. ætlast til, að reynt sé að jafna misrétti í atkvæðamagni að kosningum nýafstöðnum, en svo verður það að fara eftir atvikum, hvernig flokkafylgið kann að breytast á kjörtímabilinu og hvernig fer um afstöðu einstakra þm. Ef flokkarnir geta ekki skapað það disciplin, sem gerir þeim fært að halda í hemilinn á þm. sínum allt kjörtímabilið, þá verða þeir sjálfir að bera afleiðingarnar af því, að jafnvægið raskast.
Hv. þm. V.-Sk. sagði, að það gegndi nú öðru máli um sjálfstæðismenn en hina, að því er agann snerti. Í Sjálfstfl. væri svo sem ekki mikill agi; þar gæti hver vaðið uppi eins og honum sýndist og haft sínar skoðanir. En í stjórnarherbúbúðunum væri aginn meiri og kúgunin frekari. En ég hlakka til að sjá, hvernig þeir greiða atkv., hinir landsk. þm. Sjálfstfl., hvort þeir vilja samþ. að verða settir skör lægra en aðrir þm. eða nota sér þetta mikla flokksfrelsi til að koma í veg fyrir slíkt. Hvort þeir með atkvæði sínu vilja stuðla að því að gera sjálfa sig að einskonar þingþrælum, sem í öllu séu lægra settir en aðrir þingmenn. Hafi nokkur löggjöf verið sett hér á landi, sem talizt getur vísir til að koma á þrælahaldi, þá er það sú löggjöf, sem hér er um að ræða, ef skilja hér hana eins og Sjálfstfl. vill vera láta, og er það vel við eigandi, að hann skuli beita sér fyrir slíkum málstað.