07.11.1935
Efri deild: 63. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 518 í B-deild Alþingistíðinda. (611)
129. mál, sala og útflutningur á ýmsum íslenzkum afurðum
Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson) [óyfirl.]:
Það er raunar ástæðulaust að þjarka mikið um þetta mál, en það er þó ekki rétt hjá hv. flm., að stj. Union sé öll skipuð af útvegsmönnum. 2 eru t. d. skipaðir af ríkisstj., en í fiskimálan. þó ekki nema 1 tilnefndur af henni. Hinir eru tilnefndir af botnvörpuskipaeigendum og öðrum kjósendum. En aðalatriðið er, að sölusambandið hefir ekki kynni af og fjallar ekki um annað en saltfiskútflutninginn, þar sem fiskimálan. fjallar um allar sjávarafurðir yfirleitt. Ég held því, að till. mín eigi við meiri rök að styðjast en hin.