12.10.1935
Sameinað þing: 14. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2363 í B-deild Alþingistíðinda. (65)

Kæra um kjörgengi

Frsm. meiri hl. (Bergur Jónsson) [óyfirl.]:

Hv. 1. þm. Skagf. hefir óskað eftir því að heyra eitthvað frá okkur í meiri hl. n. áður en hann tæki aftur til máls. Það hafa verið — af honum og öðrum andstæðingum — haldnar alllangar ræður um, þetta mál, kæru Bændafl., sem hér liggur fyrir.

Ég verð nú að segja, að þau rök, sem borin hafa verið fram af hv. andstæðingum í þessu máli, virðast sannarlega næsta ómerkileg, og eru ekki annað en grautur og rökleysa, því að þau vantar algerlega allan lögfræðilegan grundvöll. Þess vegna er eiginlega engu hægt að svara, og ég segi þessi orð í fullri alvöru. ég er steinhissa á lögfræðingum hv. andstæðinga, að berja höfðinu við steininn eins átakanlega og þeir hafa gert, og hafa ekkert nýtilegt fram að færa.

Eins og kom fram í fyrri ræðu minni, er kjarni málsins sá, að til þess að hægt sé að svipta þm. kjörgengi, þarf hann að hafa misst kjörgengisskilyrði, og slíkt liggur ekki hér fyrir um hv. 2. landsk. Um kjörgengisskilyrði er tæmandi tekið fram í 28. og 29. gr. stjskr., sbr. e-lið 27. gr. Í 24. gr. kosningalaganna er ákvæði um, að uppbótarþm. séu til jöfnunar milli þingflokka. Þetta hefir lagzt á heilann í sumum hv. þm. Þeim finnst, að þessir þm. hafi sérstöðu innan þingsins, og að þeir séu, eins og hv. 6. landsk. benti á, flokksþrælar. Ég vil benda á, að allir þm. — ekki aðeins landskjörnir, heldur líka kjördæmakjörnir, — verða að gefa yfirlýsingu um, hvaða flokki þeir fylgja, er þeir skila framboði. Ég vil því spyrja: Eru það meiri svik af landsk. þm. að brjóta loforð sín en af kjördæmakosnum þm.? Ég sé ekki, að svo sé.

Hv. 1. þm. Skagf. talað um stórkostlegan mismun á reglum, er giltu um tvennskonar þm. Ég trúi ekki, að hv. þm. hafi meint þetta, að hér væri tvær tegundir þm. Eins og allir vita, eru ákveðin uppbótarsæti til jöfnunar milli flokka, miðað við það ástand, sem er, þegar kosningar fara fram, eins og hv. 2. landsk. hefir bent á. Ef þessir jöfnunarþingm. hafa ekki sama rétt og kjördæmakosnir þm., ef um þá gilda aðrar reglur, hvernig stendur þá á því, að þeir eru kjörnir í nefndir, eins og við, sem erum kjördæmakosnir? Hvernig stendur á því, að þeir hafa málfrelsi eins og við, og yfirleitt sama rétt á þingi? Hver eru rökin fyrir því, að þeir skuli vera þrælbundnir flokkum allt kjörtímabilið, en við hinir megum leika okkur milli flokka eins og okkur lystir? Ég held þetta sé bara hugsmíð út í loftið, að hér geti verið um tvennskonar misréttháa þm. að ræða.

Hv. 1. þm. Skagf. hneykslaðist á því, að hv. 2. landsk. talaði um tvær tegundir þm., en þetta er að því leyti rétt, að þeir eru kosnir eftir tveimur mismunandi reglum til þings, en þegar á þing er komið, þá er ekki lengur um tvær tegundir að ræða af þm. Það er ekki annað en reginvitleysa að halda því fram.

Í fyrri ræðu minni vitnaði ég til stjskr. og tók fram meginatriði þessa máls, sem er ofboð einfalt og þarf því ekki langar umr. um, ef menn héldu sér við kjarna málsins. Það þýðir ekkert að vitna í kosningalögin, hvorki fyrir hv. 1. þm. Skagf. né aðra; ef þau brjóta í bága við stjskr. eða eru henni ósamhljóða, þá verða þau ákvæði kosningalaganna að víkja.

Hv. frsm. minni hl. kjörbrn. taldi ekki rétt, að 28. gr. stjskr. væri tæmandi um kjörgengi, en ég las einnig upp úr 29. gr. þau atriði, er snerta þetta. Ég best við, að hv. frsm. hafi átt við þau ákvæði, er snerta hæstaréttardómara, en þið eru nú ekki nema 3 menn, svo þau skilyrði geta ekki talizt almenn.

Hv. 10. landsk. var að tala um, að þingsæti landsk. alþm. væru eign flokka, eða m. ö. o. Bændafl. á þetta sæti og á þennan hv. þm. allt kjörtímabilið út og getur vikið honum, ef sýnist, og gefið hverja skipun til þm., er sýnist. Ég er satt að segja undrandi yfir hv. landsk. þm., að þeir skuli á þennan hátt lítilsvirða sjálfa sig og fara lítilsvirðandi orðum um eigin rétt.

Það er aðalatriðið í þessu máli, sem á að ræða hér um, hvort hægt er að benda á ákvæði í stj. skr., er veiti heimild til að víkja landsk. þm. af þingi. Þetta atriði hafa hv. andstæðingar farið í kringum eins og köttur kringum heitan graut, og get ég því ekki verið að eltast meira við þá.