14.12.1935
Neðri deild: 99. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 550 í B-deild Alþingistíðinda. (664)
7. mál, eftirlit með matvælum
Frsm. (Stefán Jóh. Stefánsson) [óyfirl.]:
Allshn. hefir lesið og athugað þetta frv. og einnig átt samtal um það við nefnd frá Verzlunarráði Íslands, sem gerði nokkrar aths. við frv. Að lokum hefir allshn. orðið sammála um nokkrar smávægilegar brtt., sem hún flytur í nál. sínu á þskj. 768. N. telur þetta frv. yfirleitt til bóta, og eftirlit það, sem gert er ráð fyrir í frv., nauðsynlegt, en telur hinsvegar rétt, að gerðar séu þær breyt. á frv., sem áður er getið.
N. leggur til að tvær breyt. verði gerðar á 7. gr. frv., og eru þær eftir till. frá þeirri nefnd frá Verzlunarráðinu, sem áður er getið. Þetta eru aðeins tiltölulega lítilfjörlegar orðabreytingar við 2. málsgr., þar sem sagt er: „Ráðherra má auk þess fela sérstökum eiðsvörnum kunnáttumönnum eða stofnunum, sem hafa kunnáttumönnum á að skipa, einstakar greinir eftirlitsins, og jafnvel stjórn þess í heild“. Leggjum við til, að upphaf mgr. orðist svo: „Ráðherra má auk þess, svo sem nauðsyn krefur, fela sérstökum eiðsvörnum kunnáttumönnum“ o. s. frv., og síðar í sama málsl. á undan orðinu „stofnunum“ komi orðið „opinberum“. Þetta er engin efnisbreyt., en á það var fallizt, að breytingin gerði ákvæði þessi viðkunnanlegri. Þá kom nefnd verzlunarráðsins með nokkrar fleiri breyt., sem allshn. fannst ekki brýn ástæða til að taka til greina. Þá leggur allshn. til, að 12. gr. frv. orðist um eins og hún var í frv., þegar það var lagt fyrir hv. Ed. Hv. Ed. breytti þessari gr. eða setti aðra nýja, sem allshn. telur óheppilegri en hina upphaflegu 12. gr. Í þeirri gr., sem allshn. hefir tekið upp, er gert ráð fyrir, að í dómi uppkveðnum samkv. þessum lögum, þar sem hinn kærði er dæmdur sekur um vörusvik, megi kveða svo á, að dómurinn verði birtur á kostnað hins seka, en ef kærður er sýknaður, þá á kostnað ríkisins. En í niðurlagi gr. segir, að í dóminum skuli ákveðið, hvernig sú birting eigi að fara fram. Eins og hv. Ed. afgreiddi frv. er aðeins gert ráð fyrir, að heilbrigðisstjórnin birti almenningi niðurstöður dóms; ef heilbrigðisstjórnin telur niðurstöðuna varða almenning. Okkur fannst hitt fyrirkomulagið eðlilegra, að það verði ákveðið í sjálfum dómunum, hvort og á hvers kostnað niðurstaða dómsins verði birt. Okkur fannst það líka eðlilegt, að birtingin færi fram á kostnað kærða, ef hann reyndist sekur, og á hinn boginn ef hann væri sýknaður, þá ætti hið opinbera að sjá um að kunngera það almenningi. Landlæknir benti okkur á, að það gæti orðið erfitt fyrir heilbrigðisstjórnina að ákveða, hvort og hvernig þetta skyldi gert, en ef þetta væri ákveðið af dómstólum, þá mætti gera ráð fyrir, að aðeins væri litið á hina objektivu hlið málsins. Allshn. fellst á þessi rök og hefir því gert brtt. um, að 12 gr. verði eins og hún var í upphaflega frv.
Loks leggur allshn. til, að fyrirsögn frv. verði breytt. Upphaflega hét það frv. til l. um varnir gegn vörusvikum. Hv. Ed. breytti fyrirsögninni á þann hátt, sem allshn. hefir ekki viljað fella sig við, og leggur n. til., að frv. heiti frv. til 1. um eftirlit með matvælum og öðrum neyzlu- og nauðsynjavörum. Okkur finnst það skýra bezt þann höfuðtilgang frv. að tryggja með varúðarráðstöfunum heilbrigði í landinu. N. leggur til, að frv. verði samþ. með þeim brtt., sem ég hefi nú gert grein fyrir.