12.10.1935
Sameinað þing: 14. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 2375 í B-deild Alþingistíðinda. (72)

Kæra um kjörgengi

Magnús Jónsson [óyfirl.]:

Ég vil byrja á því að leiðrétta umsögn eða misskilning, sem kom fram í ræðu hv. 9. landsk. Hann sagði, að ákvæðin í 133. gr. sönnuðu ekkert af því að samkv. þeim væru þm. sviptir umboði áður en þing kæmi saman. Þetta er auðvitað auðsæ firra, því að Alþingi ógildir umbotin, þegar það kemur saman. Þetta getur líka gilt sem svar veð þeim ummælum sem hæstv. forseti hafði eftir merkum stjórnlagafræðingi, að umboð þm. væri óafturkallanlegt. Þetta var rétt á sínum tíma, en síðar hafa verið gerðar þær breyt. á stjskr., sem gera það að verkum, að hægt er að aftur kalla kjörbréf. Og það byggist á því, að skv. stjskr. hafa landsk. þm. aðra afstöðu en kjördæmakosnir.

Ég vil þá víkja nokkrum orðum að hv. 6. landsk. út af því, að hann sagði, að ef landsk. þm. ættu að víkja af þingi, ef þeir gengju úr flokki sínum, þá ætti hið sama að gilda um þm. Reykv. Ef hv. þm. ruglar þessu saman í alvöru, þá sýnir það, hversu gersneyddur hann er öllum skilningi á því, sem verið er að tala um. Hafi hv. 6. landsk. minnsta snefil af skilningi á málinu, hlýtur hann að sjá, að þm. Rvíkur hljóta að hafa sömu aðstöðu og sama rétt og aðrir kjördæmakosnir þm. Þeir eru að vísu kosnir hlutfallskosningum, en það er einungis til að tryggja rétt flokkanna, vegna þess hve hér eru margir þm. kosnir í einu kjördæmi. Hann færði það helzt máli sínu til sönnunar, að listarnir í Rvík yrðu að vera með flokkslit, eins og landskjörslistarnir. En samkv. kosningalögunum verður hver einn einasti frambjóðandi að sýna flokkslit, og ekki aðeins hann, heldur einnig meðmælendur hans. Aðstaða þm. Rvíkur er því nákvæmlega hin sama og annara kjöræmakosinna þm.

Hv. 6. landsk. hélt því fram, að eftir skilningi okkar væru landsk. þm. einhverskonar þm. nr. 2 eða þingþrælar, eins og hann orðaði það. En lögin eru nú einu sinni eins og þau eru, svo að yfir þessu þýðir ekki að fárast. Hér er um staðreynd að ræða, hversu þungbær sem hún kann að vera hv. 6. landsk. Annars get ég ekki set, að hér sé um neitt þrælahald að ræða. Málið liggur ósköp ljóst fyrir: Áður voru frambjóðendur úr sögunni, ef þeir fellu í kjördæmi. Nú geta þeir komizt inn á þing með dálítið annari aðstöðu. Þó eru hinir landsk. þm. verndaðir af 43. gr. stjskr. alveg eins og kjördæmakosnir þm. Þeir mega greiða atkv. alveg eins og þeir vilja í hverju máli, sem sagt fylgja sannfæringu sinni alveg eins og hinir, en þeir mega bara ekki gera eitt, og þetta eina er einmitt það, sem sýslumaður Árnesinga hefir gert: að losna úr flokki sínum. Ef M. T. hefir sagt sig úr Bændafl., sem virtist augljóst á því, að hann hefir látið ómótmælt þeim skilningi flokksstj., sem hún tilkynnti honum, að hún legði í þau ummæli hans, að hann sliti samvinnu við flokkinn, þá hefir hann hér gert alveg hið sama og þm. gerir, sem leggur af sjálfsdáðum niður þingmennsku. Sá þm., sem það gerir, sviptir kjördæmi sitt þm. og það verður að fá annan í staðinn. M. T. hefir svipt flokk sinn þingmanni, og flokkurinn á rétt á öðrum í staðinn, alveg eins og kjördæmið.

Ef vit er í því á annað borð að skipta landinu í kjördæmi, þá byggist sú skipting á því, að hentugt sé, að á Alþingi eigi sæti menn með staðþekkingu og kunnugleika sem víðast um land, menn, sem kjósendur hinna einstöku héraða geta snúið sér til með sín sérstöku áhugamál. Þessi skilyrði geta verið uppfyllt alveg án tillits til þess, hvaða flokki þm. kjördæmisins telst. Því getur úrsögn kjördæmakosins þm. úr flokki sínum ekki haggað þessum skilyrtum. Uppbótarþm. er hinsvegar fyrst og fremst þm. fyrir flokk sinn til að tryggja rétt hans. Af því leiðir, að ef hann segir sig úr flokki, segir hann af sér þingmennsku um leið. Þetta er grundvallarmismunurinn á þessum tveimur tegundum þingmanna.

Hér er því ekki um neitt þrælahald að ræða, heldur aðeins eðlilegan afstöðumun, sem leiðir af mismunandi kosningu þessara tveggja þm. En til þess að geta átt sæti á þingi má kjördæmakosni þingmaðurinn ekki segja af sér þingmennsku fyrir hérað sitt, né heldur má landskjörni þingmaðurinn fremja þá pólitísku kviðristu, að segja sig úr flokki sínum, því að flokkurinn er hans kjördæmi.

Í stjskr. er ákveðin tala þm. í hverju kjördæmi kosningu eftir kosningu. Þannig skulu vera 6 þm. í Rvík 1 í Gullbr. og Kjósarsýslu, 2 í Skagafirði o. s. frv. Þessu er slegið föstu, og falli umboð niður af einhverjurn ástæðum, verður þegar að fylla í skörðin.

Tala landsk. þm., eða lágmark hennar, er hinsvegar ekki ákveðin fyrirfram, heldur eftir kjördæmakosningar, eftir vissum reglum. Það er því alveg eins víst nú, að eins og G.-K. á að hafa 1 þm. á þingi, svo á Bændafl. að hafa 3. Verði sæti laust í Rvík, tekur það varamaður. Alveg á sama hátt á 1. varamaður Bændafl. að taka sæti Magnúsar Torfasonar, sem sagt hefir skilið við flokk sinn, sem er hið eina kjördæmi landsk. þm. Það var mjög sláandi, er hv. frsm. meiri hl. fór að bera þá saman, hv. 1. þm. Skagf. og hv. 7. landsk. sem báðir höfðu boðið sig fram fyrir sama flokk í sama kjördæmi. Hann sagði, að það væri undarlegt, ef þessir tveir menn ættu ekki báðir að hafa sama rétt. En lögin eru nú einu sinni svona. Annar nær kosningu í kjördæmi sínu, en hinn fyllir upp þá tölu, sem flokkur hans á að hafa á þingi. Í því liggur munurinn.

Hæstv. forseti sagði í ræðu sinni, að menn hefðu svo misjöfn viðhorf og tilfinningar að ekki mætti fara eftir þeim í máli sem þessu. Ég er honum sammála um það, að rétt sé að hafa hér fastan bókstaf. En er það þó ekki svo, þegar lögfræðingar deila um lagaatriði, að báðir þykjast hafa á réttu að standa, alveg eins og þegar almennir menn deila um almenn efni?

Og auk þess má á það líta, að tilfinningunum hefir einmitt verið gefið meira ráðrúm í málum svipuðum því, sem hér liggur fyrir, en annars tíðkast í löggjöfinni, eins og sést á því, að Alþingi úrskurðar sjálft um kosningu þm., í stað þess á láta dómstóla gera það, eins og beinast lægi við, ef eingöngu væri blínt á lagabókstafinn. En þingmenn hafa viljað hafa þetta svona, að láta leikmenn dæma í þessum oft mjög svo viðkvæmu málum. Það hefir oft verið að þessari tilhögun fundið og úrskurðir Alþingis taldir pólitískir, og hafa sjálfsagt stundum verið það. En þó hafa þm. viljað halda þessu fyrirkomulagi.

Þegar ég var kosinn á þing í fyrsta sinn, var kosning mín tekin gild af Alþingi, þrátt fyrir svo mikla ágalla, að enginn dómari hefði lögum samkv. getað tekið hana gilda. Það höfðu nefnilega kosið nokkur hundruð manna, sem ekki voru í kjörskrá. En vegna þess að alveg augljóst var, að þessi mistök við kosninguna gátu ekki hafa ráðið úrslitum, úrskurðaði Alþingi kosninguna gilda. Þessi úrskurður var því fyllilega samkvæmur heilbrigðri skynsemi, þótt hann gengi auðsjáanlega í bága við bókstaf laganna. Þannig er það í samræmi við heilbrigða skynsemi og sómatilfinningu þingmanna, að Magnús Torfason eigi að víkja af þingi eftir að hann hefir sagt sig úr flokki sínum, þótt lagabókstafurinn kunni að vera ekki alveg ótvíræður.