11.03.1935
Efri deild: 22. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 567 í B-deild Alþingistíðinda. (741)
26. mál, stimpilgjald
Frsm. (Jón Baldvinsson):
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, felur í sér breyt. á lögum, sem samþ. voru á síðasta þingi, um viðauka við stimpilgjaldið. Það, sem farið er fram á í þessu frv., er gert til hægðarauka fyrir bankana. Það kom í ljós, þegar farið var að framfylgja lögunum, að bankarnir töldu svo mikinn vinnuauka og fyrirhöfn að því að stimpla daglega hverskonar skjöl, víxlanótur og kvittanir o. s. frv., að þeir mundu þurfa að auka starfsmannahald sitt þess vegna. Það varð því að samkomulagi við hæstv. fjmrh., að þeir mættu greiða þetta stimpilgjald eftir á, og að stjórnarráðið gæti séð um eða látið athuga, að ekki yrði haft rangt við í þessum efnum, þannig að dregið yrði úr tekjum ríkissjóðs af stimpilgjaldsviðaukanum.
Fjhn. hefir athugað þetta frv. og leggur einróma til, að það verði samþ., því að hér er aðeins um að ræða þægilegri framkvæmd á innheimtu stimpilgjaldsviðaukans.