21.03.1935
Efri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 574 í B-deild Alþingistíðinda. (805)

42. mál, póstlög

Frsm. (Páll Hermannsson):

Það er að vísu alveg rétt, sem hæstv. fjmrh. benti á, að það er óþægilegt, eftir að búið er að semja fjárl., að kippa burt tekjuliðum þaðan. En ég vil vekja athygli hæstv. ráðh. á því, að þetta mál hefir sennilega farið framhjá honum í Nd., og er sjálfsagt af eðlilegum ástæðum, að hann hefir ekki getað verið viðstaddur. En þarf ekki að tala nánar um þetta af n. hálfu, því að ég hefi þegar lýst hennar afstöðu. en vitanlega mætti íhuga, hvort ekki væri skynsamlegt að láta l. ekki koma til framkvæmda fyrr en um næstu áramót, en sú till. liggur ekki fyrir hér, svo að ég þarf ekki að minnast á hana, nema hún komi fram síðar.