11.03.1935
Efri deild: 22. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 578 í B-deild Alþingistíðinda. (819)

37. mál, lögreglusamþykktir utan kaupstaða

Magnús Guðmundsson:

Það er ekki þörf að hafa langt mál um þetta. N. er sammála um að samþ. frv. svo að segja óbreytt. Við teljum ákveðin hentugri í frv. heldur en í núgildandi lögum. Frv. gerir ráð fyrir, að búnar séu til samþykktir fyrir sýslufélögin í heild, en ekki fyrir hvert hreppsfélag fyrir sig. Þó svo geti verið í einstökum hreppum, að þar eigi ekki sama við og í öðrum hlutum sýslufélags, þá er ekkert hægra en taka fullt tillit til þessa þegar samþykkt er sett. Ef þetta frv. verður samþ., verða tvenn lög í gildi. Önnur fyrir sýslufélögin og önnur fyrir kaupstaðina.

Eina breytingin, sem n. fer fram á að gerð sé á frv., er, að vísað sé til laga nr. 67 frá 28. nóv. 1919, en í þeim lögum eru tekin nokkur atriði til viðauka við lögin frá 3. jan. 1890.