02.03.1935
Neðri deild: 18. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 589 í B-deild Alþingistíðinda. (848)

10. mál, jarðræktarlög

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Ég vildi aðeins standa upp til þess að gera hv. þm. V.-Húnv. fyrirheit um það, að þó að ég sé kvefaður í dag, þá skal ég einhverntíma síðar tala við hann hér í þd. svo að hann megi heyra mál mitt.

En viðvíkjandi því, sem hv. þm. var að tala um, að stj. hefði ekki enn komið fram með neinar till. um lækkun vaxta af landbúnaðarlánum, eða í öðrum málum, er snerta landbúnaðinn, þá vil ég benda honum á það, að stj. hefir hingað til komið fram þeim málum, sem hún hefir flutt, hvernig sem hann hefir hagað sér og hvað sem hann hefir sagt. Og svo mun enn verða. Vaxtamálið mun koma nægilega snemma til þess að hægt sé að afgr. það á þessu þingi og láta vaxtalækkun á landbúnaðurlánum koma til framkvæmda næsta haust, þegar þeir vextir falla í gjalddaga. Og til þess er engin þörf á atbeina hv. þm. V.-Húnv. Það er yfirleitt regla stj. að koma fram með sín frv. svo vel undirbúin, að full vissa sé fyrir því, að þau gangi fram, en ekki að varpa þeim fram eins og skrumauglýsingu á Alþingi, svo sem hv. þm. V.-Húnv. temur sér, án þess að hann ætlist til, að þau frv., sem hann flytur, verði að lögum. Þau eiga aðeins að skoðast sem yfirboð. Hitt er vitanlegra aðalatriðið, að bera málin fram í því formi, sem hægt er að standa við, og koma því í gegnum þingið, sem raunverulega á að framkvæma.