13.03.1935
Neðri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 595 í B-deild Alþingistíðinda. (882)

86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða

Pétur Halldórsson [óyfirl.]:

Herra forseti! Ég sé nú ekki betur en að með l. eins og þetta frv. gerir ráð fyrir sé opnuð ákaflega þægileg leið fyrir alla bitlingahjörðina að komast á spenann, ef atvinnuvegir þjóðarinnar eiga nú að verða notaðir til þess að framfæra allskonar umráðamenn og forsvarsmenn með valdboði Alþingis, án þess að atvinnuvegirnir séu spurðir nokkurn skapaðan hlut; og síðan á Alþingi að ákveða sjálft, að þessir atvinnuvegir gjaldi það, sem það sjálft setur upp fyrir þessi störf.

Ég veit nú ekki til, að landbúnaðarmenn eða sjávarútvegsmenn hafi beiðzt þessara afskipta ríkisvaldsins af sínum málum. Ég held, að upptökin að öllum þessum svokölluðu „skipulagningum“ hafi verið hjá ríkisvaldinu. En þar eð aldrei hefir verið beiðzt afskipta ríkisvaldsins af þessum málum, leiðir af sjálfu sér, að ef ríkisvaldið vill fyrirskipa eitthvað, sem þessum atvinnuvegum á að vera til gagns, þá á ríkissjóður sjálfur að kosta þar ráðstafanir. Öðru máli er að gegna þegar ríkisstj. aðstoðar með löggjöf atvinnuveg, sem beinlínis bíður um löggjöf. Þess vegna er það, að mér finnst hér farið út á ískyggilegt braut, sem ekki verður fyrir séð, hverjar afleiðingar hefir, ef langt er farið, — ef ríkisvaldið ætlar að skattleggja sérstakar atvinnugreinar þjóðfélagsins til þess að kosta allskonar eftirlit og umstang, sem atvinnugreinin hefir alls ekki beðið um.

Ég sé, að grg. segir, að um 100 þús. kr. kostnað sé um að raða af þessum ráðstöfunum. Það er að vísu nokkurt fé, en það réttlætir að sjálfsögðu alls ekki, að honum sé dembt á hlutaðeigandi atvinnugrein, hvort sem hann verður meiri eða minni.

Ef einhver af þessum ráðstöfunum kemur nú að gagni, þá er það ekki eingöngu gagn atvinnuvegarins, heldur ríkisins ekkert síður. Það er t. d. ekki alveg sama fyrir ríkissjóð, hvert verð er á útfluttum fiski, hvort heldur litið er á bein gjöld, sem sjávarútvegurinn leggur til, eða á hag allra framleiðenda og þar með ríkissjóðs. Af þessari ástæðu er ekki heldur réttlátt að láta þessa atvinnugrein kosta ráðstafanir ríkisvaldsins, sem settar eru á stofn án þess að atvinnugreinin hafi verið spurð um það.

Með tilliti til 4. gr., um kostnað við störf kjötverðlagsnefndar, skiptir náttúrlega litlu máli, hver hann á að greiða á pappírnum, því að ég get ekki betur séð en að fullt útlit sé fyrir, að hin beinu afskipti ríkisvaldsins af því máli hljóti að leiða til þess, að ríkissjóður verði að greiða stórmikla upphæð fyrir framleiðendur, til þess að koma út þeim hluta framleiðslunnar, sem vegna ráðstafana ríkisvaldsins hefir ekki fengið markað á framleiðsluárinu 1934—1935. Þegar á þetta er litið, þá er náttúrlega ákaflega lítill hluti kostnaðarins við þessar ráðstafanir, sem á að velta á framleiðendur sjálfa og láta hinn svokallaða verðjöfnunarsjóð borð. En ískyggilegt er þetta þó, þegar litið er á það, að hér er opin leið fyrir þá, sem nú skipa meiri hl. Alþingis, að hlaða á atvinnuvegi landsmanna nefndum á nefndir ofan, án þess að um sé beðið. Ég álít, að slíkar ráðstafanir verði ríkissjóður að kosta, og þess vegna sé slík löggjöf sem þessi ekki rétt.