13.03.1935
Neðri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 596 í B-deild Alþingistíðinda. (883)
86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Ég ætla ekki langt út í að ræða þetta mál nú. En af því að þetta frv. er fram komið eftir minni ósk — þó að þess væri ekki sérstaklega getið af hv. frsm. —, tel ég hlýða að segja örfá orð aðallega út af því, sem hv. 5. þm. Reykv. sagði. Hann taldi í fyrsta lagi óréttmætt, að kostnaður við afurðasölu eftir þeim l., sem sett voru í fyrra, væri borinn af atvinnuvegunum, af því að þeir hefðu ekki óskað eftir þeirri löggjöf um afurðasölu og meðferð afurða. Þetta er að verulegu leyti á misskilningi byggt, því að ég býst við, að allir hv. þdm. viti, að það var alveg almenn ósk í hverri þessara framleiðslugreina, að löggjöf um þessi efni yrði sett. Ég get bent á kjötsölulögin og mjólkursölulögin. Það var almenn ósk þeirra bænda, sem hlut áttu að máli, að sú löggjöf yrði sett, einmitt á þeim grundvelli, sem gert var, veit ég ekki betur en að menn kepptust við að lýsa yfir hér á Alþingi, að þeir væru þeirri löggjöf hlynntir, — og þá líklega ekki af öðru en því, að hún væri í samræmi við vilja bændanna.
Sama má segja um afskipti af síldarsölunni. Það var ósk síldarframleiðenda s. l. sumar, að gripið yrði í tauma á svipaðan hátt og gert var. Hitt er líka vitanlegt, að meðal sjómanna voru uppi almennar kröfur um, að hafizt yrði handa af hálfu hins opinbera til að greiða fyrir nýjum verkunaraðferðum og leita að nýjum mörkuðum, og til að sinna öðrum hlutverkum, sem fiskimálanefnd er ætlað að inna af hendi.
Þá kom það einnig fram í andmælum gegn þessu frv., að ef þessum kostnaði er beint til framleiðenda, þá sé enginn hemill á, hvað hann verði hár, miklu síður en ef ríkissjóður bæri kostnaðinn. Ég er á þveröfugri skoðun. Ég lít svo á, að ef ríkissjóður verður látinn bera kostnaðinn, geti það orðið til þess, að hann verði óeðlilega hár, en að kostnaðarákvörðunum og kostnaði verði fremur stillt í hóf, ef framleiðendur sjálfir eiga að standa skil á honum viðkomandi sínum atvinnuvegi.
Og ég vil bæta því við, að mér finnst mjög eðlilegt, að hver vörugrein fyrir sig beri kostnaðinn, sem af meðferð hennar hlýzt, því að það má segja, að sannvirði hverrar vöru kemur ekki fram, nema hún beri sölukostnað og annan kostnað við meðferð hennar. Þetta er önnur höfuðástæðan til þess, að ég fer fram á að fá þessa löggjöf, en hin er sú, að ég sá fram á, að þessi kostnaður saman kominn á einn stað, mundi verða tilfinnanlegur útgjaldaliður fyrir ríkissjóð. Aftur á móti væri miklu eðlilegra, ef einhver vara gæti ekki borið sinn sölukostnað, að bæta henni upp sérstaklega, en hafa þetta ekki sem almenna reglu. Ég viðurkenni, að þetta sparnaðarsjónarmið fyrir ríkissjóð réð miklu þegar ég fór fram á, að frv. yrði flutt, án þess að draga neitt úr því, að mér finnst þetta í alla staði eðlileg tilhögun. Og með þeirri skipun er ég ekkert hræddur um meiri bruðlunarsemi, því að ég þykist þess viss, að þeir, sem eiga að ráða, muni hafa alveg eins mikið aðhald, þegar þeir eiga að gera hverri framleiðslugrein skilagrein fyrir kostnaðinum, eins og með því að gera skilagrein í sambandi við LR. eða önnur fjármál ríkisins.