13.03.1935
Neðri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í B-deild Alþingistíðinda. (890)

86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða

Pétur Halldórsson [óyfirl.]:

Mér þykir vænt um, að hæstv. fjmrh. lítur svo á, að bæjarfulltrúar Reykjavíkur, sem hafa farið með bæjarmál Rvíkur árum saman, m. a. með það mál, sem hann á við, þegar hann er að tala um skipun Jakobs Mollers í n., — mér þykir vænt um, að hann skuli vera svo strangur, að hann telji þessa menn ekki vel til þess fallna að gæta þeirra hagsmuna, sem þessi n. á að gæta. En samkv. l. var bæjarstj. Rvíkur gert að skyldu að skipa mann í þessa n., og hún hefir ekki vald til að skipa neina nema bæjarfulltrúa.

Ég hefi frá því fyrsta verið sammála þeim mönnum, sem hafa viljað láta framleiðendurna sjálfa annast þessi mál, kannske með aðstoð þeirra manna, sem þeir kalla til og hafa sérþekkingu á málinu, en hv. fjmrh. og hans flokkur gerði l. svo úr garði, að þess var ekki kostur, og þeir ætluðu að nota meiri hl. þessarar n. til að skipa í þessar stöður bitlingalýð frá sér. Ég held, að nú sé svo komið, að flestir menn, jafnvel hæstv. fjmrh., sjái, að þessi skipun n. var fjarstæða, og á því verður gerð breyt., og það á þessu þingi. En líklega má hæstv. fjmrh. sitja mjög á sér og sínum óskum í þessu efni, ef hann þarf nú að reka bitlingalýð þennan aftur frá jötum þessum.