13.03.1935
Neðri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 603 í B-deild Alþingistíðinda. (891)
86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil aðeins benda á, að með þessu stendur allt við það sama og áður hjá hv. þm. Honum hefir ekki tekizt að sýna fram á, að Jakob Möller og María Maack séu sérfræðingar í mjólkursölun. Þau falla því bæði undir þessa skilgreiningu, sem hann var með áðan.