13.03.1935
Neðri deild: 27. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 606 í B-deild Alþingistíðinda. (895)
86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða
Fjmrh.:
(Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]: Hv. þm. G.-K. sagði, að ég hefði alveg gengið framhjá þeirri fullyrðingu hans, að tilgangur frv. væri sá, að fela kostnaðinn við nefndirnar. Ég hafði svarað hv. 4. þm. Reykv. viðvíkjandi þessu atriði áður, og auk þess of hv. þm. G.-K. þetta atriði málsins svo mjög inn í efnislausa og ómerka mælgi, að ég gleymdi, satt að segja, að hann hefði minnzt á það.
Annars liggur það í augum uppi, að óhugsandi er, að síður verði tekið eftir kostnaðinum við nefndirnar, ef hann er greiddur af framleiðendum sjálfum. Það er einmitt líklegt, að þá verði menn miklu fremur á verði um störf nefndanna og kostnað við þær en ef ríkissjóður ber kostnaðinn.
Þá vil ég nokkuð víkja að því, sem hv. þm. G.-K. sagði um óvinsældir form. mjólkursölunefndar hjá neytendum. Fullyrðingar hans um þetta eru vitanlega alveg ósannaðar, en ef sannar væru, ættu þær eftir röksemdum hv. þm. G.-K. að sýna það eitt, að séra Sveinbjörn væri vel á verði um hagsmuni bænda. En sannleikurinn er sá, að þó nokkrar hnippingar hafi orðið milli séra Sveinbjarnar og neytenda úr íhaldsfl. hér í bænum, þá hefir séra Sveinbjörn ekkert frumkvæði átt að þeim erjum, heldur aðeins borið af sér lögin með einbeitni og harðfylgi. Hann hefir staðið vel í ístaðinu fyrir bændur og fyrir það eitt hlotið óvinsældir nokkurra flokkssystra hv. þm. G.-K. hér í Reykjavík.