21.03.1935
Efri deild: 31. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 610 í B-deild Alþingistíðinda. (908)
86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Meiri hl. fjhn. Nd. hefir flutt þetta frv. eftir ósk frá mér. Frv. felur það í sér, að kostnaður við störf ýmissa n., sem settar voru á laggirnar samkv. l. frá síðasta þingi, verði greiddur af andvirði þeirra afurða, sem n. fjallar um, í staðinn fyrir það, að samkv. I. á að greiða þann kostnað úr ríkissjóði.
Ástæðan til þess, að frv. er fram komið, er fyrst og fremst sú, að ég vil koma þarna á sparnaði fyrir ríkissjóð. Það er ekki gott að segja, um hve mikinn sparnað hér er að ræða, en ég býst við, að hann verði ekki meiri en 100000 kr. Þó get ég ekki fullyrt það, því að enn er ekki fengin reynsla á störfum sumra n., t. d. fiskimálan. Ríkissjóð munar talsvert um þennan kostnað, en flestar þessar afurðir, sem hér koma til greina, munar fremur lítið um þennan kostnað, ef honum er jafnað þannig niður.
Þá er önnur ástæða fyrir flutningi þessa frv., en hún er sú, að mér finnst í alla staði eðlilegt, að hver tegund afurða beri uppi þann kostnað, sem felst í sölu hennar. Annars kemur ekki út raunverulegt sannvirði þessa varnings.
Ég ætla ekki að fjölyrða meira um málið að þessu sinni, en vil óska, að því verði vísað til fjhn. þessarar d., að lokinni þessari umr. Vil ég beina þeirri ósk til þeirrar hv. n., að hún hraði afgreiðslu málsins, svo að hægt verði að afgr. það áður en þingi verður nú frestað.