25.03.1935
Efri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 631 í B-deild Alþingistíðinda. (924)
86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða
Guðrún Lárusdóttir:
Ég verð að biðja hv. d. afsökunar, að ég verð að fara nokkrum orðum um mál, sem er ekki hér á dagskrá, en um það kenni ég hv. 4. landsk. Hann innleiddi þetta með því að tala um húsmæðurnar í bænum og gera lítið úr þeim. (JBald: Nei).
Hann virtist vera undrandi yfir því, að húsmæðrafélagið skyldi ekki fyrst og fremst bindast samtökum til að fá lægra verð. Það er eðlilegt, að hann hugsi einna helzt um verðlækkun, vegna þess að hans flokksmenn og hans höfuðmálgagn lofaði því hátíðlega í haust, að mjólkin skyldi lækka ofan í 35 aura undir eins og Samsalan væri tekin við. Það er því eðlilegt, að hann furði sig á því, að húsmæðurnar í Rvík skuli ekki ganga hér eftir gefnu loforði hans manna.
Ég get sagt honum það, sem hann skilur ekkert síður en ég, að einmitt þessi loforð vöktu miklar vonir hjá mörgum, sem stynja undir dýrleika mjólkurinnar. En hvað verður svo úr þessum efndum? Það verður það, að margir, sem áður gáfu fyrir mjólkina 35 aura, verða nú að gera svo vel að gefa fyrir hana 40 aura. Eigi að síður voru húsmæðurnar í húsmæðrafélaginu svo hagsýnar, eins og hv. þm. sagði áðan, að þær sáu fram á, að með þeim gífurlega kostnaði, sem féll á mjólkurframleiðsluna, gat ekki komið til mála að lækka verðið eins og sakir stóðu.
Ég ætla ekki að fara út í þetta mál, af því að það er ekki á dagskrá hér nú, en það kemur kannske hingað síðar meir, og gefst þá tækifæri til að ræða það. Það, sem við báðum um, var meiri mjólk en hann gerði gys að því og þótti það ástæðulaust, þar sem nóg mjólk hefði verið á boðstólum. Það er satt, að það var til nóg af gerilsneyddri mjólk. En það er til flokkur neytenda, sem verður að fá ógerilsneydda mjólk. Að vísu hefir sá flokkur ekki mikinn rétt á sér í augum hv. 4. landsk., því að þeir eru ekki komnir í kjósendatölu. Það eru nefnilega ungbörnin. Þegar tekið var að miklu leyti fyrir sölu nýmjólkur beina leið, svo að menn urðu í staðinn að kaupa gerilsneydda mjólk, þá skeði það, sem hv. þm. vill kannske ekki trúa, að smábörnin urðu veik hrönnum saman, af því að þau voru óvön þessari mjólk og þau þoldu hana ekki. Þess vegna var það, að húsmæðurnar töldu Samsölunni skylt að hafa nýmjólk alla jafna á markaðnum. Með það erindi fór n. á fund mjólkursölun. og hún sagðist mundu athuga, hvernig þetta væri framkvæmanlegt í framtíðinni. Lét n. sér það vel líka. Annað erindi n. á þennan fund var að vita, hvort Samsalan vildi ekki hlutast til um það að, að mjólk væri sérmerkt og mjólkurvörur frá einu búi erlendis, sem þóttu sérstaklega góðar að dómi allra húsmæðra, sem höfðu skipt við það bú. Undir þetta var líka tekið fremur liðlega.
Svo leið nú og beið, og síðan komu svörin, þau voru þessi, að sérmerktu mjólkinni var blandað saman við hina mjólkina og hætt að selja hana undir sérmerki. Og nýmjólkin, sem n. hafði góð orð um, að koma skyldi á markaðinn, var að vísu auglýst, að hún væri fáanleg, en aðeins gegn læknisvottorði. Ég verð að segja, að þetta kemur einkennilega við á sama tíma sem brennivínið er látið ganga vottorðalaust hér um landið. Þetta var það, sem húsmæðurnar báðu um, að fá nýmjólk, sem við kölluðum svo, en ekki samhellta mjólk, sem sumir kalla samsull. Það var þetta, sem átt var við, þegar farið var fram á að fá meiri mjólk.
Hv. þm. minntist á brauðin og brauðsöluna Já. hvernig var það þá með brauðin? Var það ekki þannig, að Alþýðubrauðgerðin ein fékk búðir Samsölunnar til að selja brauð sín í? Var þá um annað að gera en að kaupa í þessum búðum, ef menn vildu ekki fara lengri eða skemmri aukakrók? Þetta kemur aðallega niður á einyrkja húsmæðrum, og þess vegna var farið fram á það, að brauðasalan væri gefin frjáls.
Hann sagði, að við vildum eyðileggja Samsöluna. Það hefir hann engan rétt til að segja. Við höfum enga tilraun til þess gert, þó að við höfum gert tilraunir til að fá ýmsar leiðréttingar á málum okkar. Og ég fullyrði, að ef þær hefðu verið teknar til greina, þá væri þessu máli að mörgu leyti betur komið en nú er. Hann sagði líka, að við vildum hafa fyrirkomulagið þannig, að hver sem vildi gæti sett upp mjólkursölubúð. Þetta er nú bara fjarstæða, sem hann meinar ekkert með.
Þá var það með lánstraustið. Við fórum fram á það, að meðan fólkið væri að venjast þessu nýja fyrirkomulagi, væri fátæku en þó áreiðanlegu fólki lánuð mjólkin til viku í senn. Fátæklingar eru oftast eins áreiðanlegir í viðskiptum eins og þeir, sem efnaðri eru. Og þá gæfist fátæku fólki kostur á að fá reikning við mjólkurbúðirnar. Flokksbróðir hv. þm. gekk inn á þetta við mig, og sagði hann mér, að þeir hefðu sagt stúlkunum í búðunum, að þær mættu lána fólki þegar svo bæri undir. En svo segir hv. þm., að við séum að berjast fyrir lánum handa efnaða fólkinu. Hann þekkir lítið til okkar starfs, ef hann heldur, að við höfum ekki frekar haft í huga þá fátæku en þá efnuðu.
Guðmundur Oddsson hefir gengið inn á það, að þetta væri óþægilegt fyrir fátæklingana. Margir drógu af þessum ástæðum við sig mjólkurkaup, og fyrstu dagana gátu sumir alls ekki fengið neina mjólk.
Séra Sveinbjörn Högnason spurði mig, hvort ekki myndi vera praktískt að borga mjólkina fyrirfram, þannig, að keyptir yrðu miðar, sem mjólk yrði svo tekin út á. Jú, ég svaraði, að það gæti verið heppilegt fyrir þá, sem peningana hafa, en fyrir verkamenn, sem lítið hafa handa á milli, væri þetta lítil hjálp. — Þetta allt kemur því til leiðar, að fólk dregur inn kaup sín og hættir að skipta við þær verzlanir, sem eru jafn staurslegar í viðskiptum og Samsalan.
Þá sagði hv. þm., að enginn árangur hefði orðið af samtökum húsmæðranna. Ég bjóst nú ekki við, að hann færi að hæla þeim. En þá vil ég spyrja hann, hvers vegna samsalan fór að lögsækja húsmæðurnar úr því starf þeirra var öldungis gagnslaust, eins og hv. þm. sagði.
Annars vil ég ekki vera að þreyta hv. d. með því að ræða um mál, sem ekki er á dagskrá, og get því látið máli mínu lokið.