25.03.1935
Efri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (925)

86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða

Jón Auðunn Jónsson:

Hæstv. forsrh. sagði, er hann var að tala um fisksölumálin, að ekki hefði getað orðið samkomulag, og því hefði orðið að grípa fram fyrir hendurnar á framleiðendunum. Þetta er ekki rétt. Það var aðeins einn maður, Vilhjálmur Þór, sem ekki vildi vera ánægður með fyrirkomulagið. Þær till., sem samþ. voru á fundinum, voru bráðabirgðatill. til samlaganna úti um land Vilhjálmur Þór taldi bæði grúppusystem og einkasölu ríkisins óhafandi, en hann tók það fram, að ekki mætti skoða sína till. svo, að hann ætlaði að draga sig út úr fisksölusamlaginu, þótt hún yrði ekki samþ. Einn fulltrúi stakk upp á því, að hver landsfjórðungur hefði sinn fulltrúa í framkvæmdastj. Ef það hefði verið tekið upp, þó hefði verið framkvæmd till. S. Í. S. um þetta.

Nokkrir pólitískir refir eyðilögðu fisksöluna á síðasta ári. En bráðabirgðal. frá síðasta þingi bera þess vitni, að þeir hafi átt erfitt með að bera ábyrgðina af þessu eyðileggingarstarfi sínu. Þó uggir mig, að þeirra fyrirgreiðsla muni verða málinu til lítillar blessunar.