25.03.1935
Efri deild: 34. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 635 í B-deild Alþingistíðinda. (929)

86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða

Jón Auðunn Jónsson:

Mér þótti vænt um, að ég gat komið hæstv. ráðh. í skilning um ástæðurnar fyrir því, að útflutningurinn hefir orðið minni nú en áður, sem sé þær m. a., að við höfum misst 14 þús. tonna markað á Spáni.

Ég býst ekki við, að örðugleikar verði minni hér eftir, þegar búið er að brjóta niður ágætt samvinnufyrirkomulag milli Union og fiskinnflytjenda þar.

Um óánægju Austfirðinga er það að segja, að of langt mál yrði að fara nákvæmlega út í það. Þeir gátu ekki selt allan sinn fisk, af því að þeir höfðu gengið inn á sérstaka verkunaraðferð. Reyndist fiskur þeirra linverkaður, og mun það mest hafa verið að kenna manni, sem þar átti að hafa forgöngu, en skorti nauðsynlega þekkingu.

Við gátum heldur ekkert selt til Barcelona, meðan Færeyingar höfðu þar markað, því að þeirra fiskur líkaði betur þar suður frá.