26.03.1935
Efri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (938)
86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða
Þorsteinn Briem [óyfirl.:
Ég þarf ekki mörgu að svara hv. frsm., því hann lék þann leik, sem honum er títt að leika, að tala utan við efnið og skjóta sér framhjá því að svara. Hann tæpti að vísu á því að reyna að verja fyrri orð sín um það, að bændur væru ekki færir um að ráða sínum málum eða afurðasölumálunum af því að þeir væru ekki sérfræðingar í verzlun. En er það ekki yfirleitt svo, að menn með sæmilegri alþýðugreind geti fljótlega sett sig inn í mál, jafnvel þó þeir séu ekki sérfræðingar. Eða eru það allt sérfræðingar, sem mjólkursölunefndina skipa? Ég hygg, að a. m. k. þeir, sem hafa stundað háskólanám, hafi ekki lagt fyrir sig sérfræði í verzlun, hvorki um mjólkursölu eða annað. Hv. frsm. viðurkenndi, að bændur hefðu kunnað að velja sér fulltrúa til þess að fara með sín verzlunarmál. Mundu þeir þá ekki eins hafa getað það í þessu atriði? Ef bændur hefðu mátt nokkru ráða í þessu máli, þá hefðu þeir einmitt valið þá menn, sem mesta þekkingu og reynslu hafa í þessum efnum, miklu meiri heldur en ýmsir þeirra manna, sem í n. voru skipaðir.
Ljósasti vottur þess. hversu hægt hv. frsm. var að geta flúið burt frá þessu máli, var það, þegar hann fór að tala um Búnaðarfélag Íslands. Hann tuggði þessa gömlu sögu um búnaðarmálastjórana 2 og vildi með því sanna, að bændur væru ekki færir að ráða málum sínum, af því að þar hafði verið talið heppilegra eins og á stóð að skipta verkum milli þeirra manna, sem eiga að hafa forustu búnaðarmálanna með höndum. En hvað sem því líður, þá er það víst, að bændum almennt verður ekki kennt um það, að búnaðarmálastjórarnir urðu 2, því þeir hafa ekki átt þess kost um allmörg ár að ráða yfir stjórn Búnaðarfél., þar sem þeir hafa ekki átt þess kost að kjósa hana. Það er Alþ., sem hefir ráðið meiri hl. í stjórn Búnaðarfél.
Slíkar sögur um handalögmál og annað slíkt, sem hv. frsm. kom með, hélt ég satt að segja að væri fyrir neðan virðingu sjálfs forseta Sþ. að bera sér í munn, og tel ég þær ekki svaraverðar.