26.03.1935
Efri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 648 í B-deild Alþingistíðinda. (939)
86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða
Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:
Ég þarf ekki mörgu að svara í þessum umr. En ég vildi aðeins út af því, sem hv. 1. þm. Reykv. sagði, mótmæla þessum margendurteknu staðhæfingum hans og annara um það, að Korpúlfsstaðabúinu hafi verið sýnd einhver sérstök ósanngirni, og það á þann hátt, að gerð hafi verið tilraun til þess að eyðileggja búið. Þessi staðhæfing hefir ekki við neitt að styðjast. Eða vill hv. þm. benda á, að Korpúlfsstaðir hafi á nokkurn hátt verri aðstöðu gagnvart Samsölunni heldur en aðrir bændur? Hitt er annað mál, að Korpúlfsstaðir fá ekki að hafa neina sérstöðu eða sérréttindi fram yfir önnur bú hér í nágrenninu. Það hefir nákvæmlega sömu aðstöðu og allir bændur hafa. Og ef búið er rekið jafnvel og látið er í veðri vaka, þá ætti það sannarlega að geta staðið sig vel með samskonar aðstöðu og önnur bú, sem talin eru vel rekin. En ef búið eyðileggst undir þeirri aðstöðu að hafa nákvæmlega sömu réttindi og aðrir, þá er það ekki það fyrirmyndarbú, sem það er talið að vera. Ég skal bæta því við, að þessi réttindi, sem það ásamt austanbúunum hafði til þess að gerilsneyða mjólk, voru tekin af þeim vegna þess, að það var kostnaðarmeira að senda út frá fleirum en einum stað. En ég býst ekki við, að búinu hafi verið neitt kappsmál að fá að halda þessum rétti, vegna þess, að þegar gerilsneyða á svo lítið magn eins og er á Korpúlfsstöðum, þá mun það, eftir því sem mjólkurfræðingur segir mér, vera dýrara heldur en að kaupa stassaniseringu fyrir 3 aura í Mjólkurfélagi Reykjavíkur, sem er hægt að selja þar svo ódýrt vegna þess hve stassaniserað er þar mikið magn mjólkur. A. m. k. hélt Jónas Kristjánsson læknir því fram, að þetta magn mjólkur, sem væri á Korpúlfsstöðum, væri ekki hægt að gerilsneyða svo í lagi væri fyrir minna heldur en 4 aura pr. lítra. — Nei, það er langt frá því, að búinu á Korpúlfsstöðum hafi verið sýnd nokkur ósanngirni, þar sem það hefir nákvæmlega sömu aðstöðu og allir bændur í nágrenni Reykjavíkur.
Ég skal ekki fara neitt sérstaklega út í þær umr., sem átt hafa sér stað milli annara hv. þm. En ég vildi aðeins minnast á hina einkennilegu röksemdafærslu hv. 1. þm. Reykv., þar sem hann talar um, að núv. stj. muni ætla að gera það að fráfararsök, að ekki verði gerðar hinar minnstu umbætur á Samsölunni, og fari nú vel á því. Þetta er svipað öðru því, sem fram kemur hjá hv. 1. þm. Reykv. Það er harla einkennilegt að vera að eyða tíma í að slá fram staðhæfingum eins og þessum og rökræða á grundvelli — ef hægt er að kalla það grundvöll — eins og þessum. Það, sem ég tók sérstaklega fram viðvíkjandi Samsölunni, var vitanlega ekki þetta; það heyrðu allir. Þess vegna er hér búin til staðhæfing, henni svo slegið fram og farið að ræða um hana hér í d. Ég sagði þvert á móti, að það þyrfti umbætur á Samsölunni; það væri verið að umbæta hana á ýmsan hátt, og sjálfsagt væri að gera það enn þá meira. En ég sagði annað, sem er nú einmitt sú setning, sem verður til hjá hv. 1. þm. Reykv. á þann hátt, sem menn hafa nú heyrt. Ég sagði, að ef ætti að fara að kjósa fulltrúaráð í stjórn Samsölunnar og það ætti að ráða eftir því, hvaða hagsmunir yrðu ofan á á hverjum tíma, þá ætlaði ég mér ekki að verða lengur landbúnaðarráðh. Ég hefi sagt, að ég ætlaði mér að standa á móti þessu á meðan ég gæti, því ég veit, að um leið og þannig er komið, er komið á samskonar ástand og var í Mjólkurbandalagi Suðurlands, þar sem slegizt var um hagsmuni innbyrðis, og þá er Samsalan úr sögunni. Ég veit, að það væri að leiða deilur milli framleiðendanna inn í herbúðirnar, deilur, sem mundu sprengja samtökin og ríða þeim að fullu; samskonar deilur og hafa verið í síldinni undanfarið, þar sem slegizt er um hagsmuni einstakra seljanda. — Það er þessi afstaða mín, sem hv. 1. þm. Reykv. er að „referera“ í orðum sínum í dag, en þessi orð hv. þm. eru langt frá því, sem ég hefi sagt, og það skiptir hér máli.
Ég get aðeins, áður en ég lýk máli mínu, látið nokkur orð falla um fulltrúavalið, sem hv. 10. landsk. talaði um. Hann sagði, að ef bændur hefðu sjálfir mátt ráða, þá hefði skipun Samsölunnar verið öðruvísi en nú er; þeir hefðu meiri reynslu og þekkingu á þessum málum en fulltrúarnir í mjólkursölunefnd. (ÞBr: Heldur en sumir þeirra). En ég vil minna hv. þm. á það, að bændur í Mosfellssveit hafa haft Eyjólf Jóhannsson, einn manninn í mjólkursölunefnd, í 17 ár sem fulltrúa fyrir sig. Og annar maður í n.. Egill í Sigtúnum, hefir verið fulltrúi bænda frá því þeir byrjuðu fyrst að hafa samtök með sér. En einmitt um þessa menn hefir staðið mestur ófriðurinn. Og svo ætti, ef valdir væru fleiri fulltrúar beint af bændum sem umboðsmenn fyrir sérstök hagsmunasvæði, að verða meiri friður í málinu!
Þeir aðrir í stjórn Samsölunnar eru Sveinbjörn Högnason, sem hefir verið viðriðinn stjórn Ölfusárbúsins frá stofnun þess og er allra manna kunnugastur þessum málum. Þá er Árni Eylands. Um hann má fullyrða, að það finnst varla meðal bænda sjálfra maður, sem kunnugri er hagsmunamálum bænda á öllum sviðum. Og um Hannes Jónsson dýralækni vil ég halda því fram, að hann hafi sérstakan kunnugleika til síns starfs í n. Ég efast því um, að hægt sé að finna menn, sem kunnugri eru mjólkursölumálum en þessir 5 menn, sem kosnir hafa verið sumpart af bændum og aðrir af landbrh. til þess að fara með þessi mál.
Um handalögmálin í Búnaðarfél. ætla ég mér ekki að ræða, en víst er það, að þau áttu sér stað. Ég hefði getað gert það, að minna hv. 10. landsk. á þetta frekar, ef ég sæi ekki að honum er vel kunnugt um það. (ÞBr: Kviksögur). En hví var verið að blása upp þeim kviksögum, sérstaklega ef nú skyldi vera um fleiri en eitt par að ræða?