26.03.1935
Efri deild: 35. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 651 í B-deild Alþingistíðinda. (941)

86. mál, sala og meðferð íslenskra afurða

Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:

Það er víst ekki von til, að ég sé sérstaklega upplitsdjarfur, þegar ég heyri, að annar eins skörungur og hv. 1. þm. Skagf. ætlar að svara mér aftur. Það er svei mér hótun, sem er betur að endurtaki sig ekki daglega. En þrátt fyrir þessa hótun hv. þm. ætla ég nú samt að voga að leggja út í það að svara honum.

Ég ætla fyrst að svara því, sem hv. þm. kom að síðast í ræðu sinni, viðvíkjandi Korpúlfsstaðabúinu. Það er vitanlega alls ekki hægt að benda á að Korpúlfsstaðabúinu hafi verið sýnd nein ósanngirni. Það hefir enginn getað bent á það. En ég hefi einmitt auglýst eftir því, hvort Korpúlfsstaðabúinu hafi verið sýnd óbilgirni fram yfir aðra framleiðendur. Hv. þm. sagði, að ég hefði veitt Korpúlfsstöðum sérleyfi. En hvað væri þá? Hefði ég þá verið að níðast á Korpúlfsstaðabúinu? Hv. 1. þm. Skagf. er hér farinn að fara með svipuð rök og hv. 1. þm. Reykv. En þar að auki eru þetta hrein ósannindi. Þegar Korpúlfsstaðabúinu voru veitt sérréttindi samkv. bráðabirgðal., gilti sá réttur um öll búin, og sú ráðstöfun var aðeins framlenging þess leyfis sem var áður. Fyrrv. ráðh., hv. 10. landsk., hafði veitti búinu þessi réttindi, og hér var aðeins um að ræða áframhald af því leyfi. Þótti ekki ástæða til að breyta þessu fyrr en leyfin voru gefin út 15. jan. En þá var Korpúlfsstöðum aðeins veitt leyfi til að gerilsneyða mjólk, en ekki nein sérréttindi. Enda veit hv. þm., að Korpúlfsstaðabúinu var boðið upp á að búa til barnamjólk sérstaklega, en það var ekki þegið, því að Thor Jensen var ekki hagnaður í að selja sína gerilsneyddu mjólk, sem var verr gerilsneydd en annarstaðar, og ekkert vinsæl. Korpúlfsstaðabúið fékk því engin sérréttindi hjá mér.

Þegar bráðabirgðal. komu til framkvæmdar, þá var Korpúlfsstöðum veittur gerilsneyðingarréttur, eins og búunum fyrir austan. Þetta sýnir aftur nægilega, að Korpúlfsstaðabúið hefir á engan hátt verið afskipt. Það hefir nákvæmlega sömu aðstöðu og hver annar bóndi, og því ekki heldur neina sérstöðu. En andstæðingar Samsölunnar hafa haldið því fram, að það ætti að hafa sérstöðu, því að það sé svo vel rekið. En ef svo væri, þá ætti það líka að standa betur að vígi en önnur bú.

Þá vil ég víkja að þeim ummælum hv. þm., að það séu komnar fram till. frá sumum Framsfl.mönnum í Nd. um að breyta fyrirkomulaginu á mjólkursölulögunum, og þessar till. gangi í sömu átt og þær, sem hv. flokksmenn hans koma fram með. En þær till. ganga allar út á það, að mjólkursölunefnd afhendi vald það, sem hún hefir um ákvörðun verðjöfnunargjalds og skipting markaða, í hendur stjórnar, sem kosin sé af fulltrúaráði bænda. Þar með á að láta öll viðkæmustu ágreiningsmálin í hendur stjórnar, sem kosin er af fulltrúum hinna ólíku hagsmunasvæða, sem deila sín í milli. En þar með á að afnema mjólkursölunefndina sem hlutlausan dómstól um þessi mál. Á fundi Mjólkurbandalags Suðurlands var mikill hluti bænda sammála um það, að þessi viðkvæmustu ágreiningsatriði yrði mjólkursölun. að útkljá. Því er sá mikli munur á till. Bjarna Ásgeirssonar og þeirra Sjálfstflmanna, að Bjarni Ásgeirsson gerir ráð fyrir því, að kosið sé fulltrúaráð, sem kjósi þriggja manna stjórn til þess að sjá um sölu á mjólkinni, en ef ágreiningur verður í stj., þá sé málinu skotið til mjólkursölun. Stj. hefir ekkert að gera með verðjöfnunargjaldið eða skipting markaða, heldur aðeins söluna í bænum.

Á þessari till. Bjarna Ásgeirssonar og till. sjálfstæðismanna er sá reginmunur, að mjólkursölun. stendur eftir sem áður ráðandi um öll viðkvæmustu ágreiningsmálin, en 3 manna stjórn ræður aðeins sölunni í bænum. Það er því síður en svo, að Bj. Ásg. fari sömu leið og sjálfstæðismenn. Ég álít, að till. Bjarna sé auðvelt að framkvæma nú. Ég held, að það megi ná samkomulagi milli framleiðenda. Og ég hefi hugsað mér leið, sem ég býst við, að Mjólkurbú Flóamanna, sem erfiðast hefir verið að semja við, muni fallast á.

Að lokum vil ég koma að þeim ummælum hv. 1. þm. Skagf., að ég geti ekki hreyft mig í málinu og ég rísi upp á móti mínum flokksmönnum. Þegar tekið er til að skipuleggja eitthvert mál, eins og mjólkurmálið, þá staðhæfi ég það, að ekki er hægt að hlaupa eftir því, sem einn og einn flokksmaður álítur á hverjum tíma, að eiga að gera.

En hinu atriðinu, að ég sé sérstaklega í taumi jafnaðarmanna í þessu máli, svara ég þannig: Ég get vel skilið þá staðhæfingu hv. 1. þm. Skagf., því að ég veit, að allan þann tíma, sem hann sat í stjórn, var hann í taumi. Hann var teymdur út í hverja ófæruna af annari. Því er ekki ólíklegt, að hann álíti, að allir, sem í stj. sitja, þurfi að vera í taumi. Það var aðaleinkennið á stjórnarferli hans, að hann var allt af í taumi, og ég vil segja, sér verri manna.