02.03.1935
Neðri deild: 18. fundur, 49. löggjafarþing.
Sjá dálk 660 í B-deild Alþingistíðinda. (959)
27. mál, trjáplöntur og trjáfræ
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Ég er hálfhissa á þeirri kergju, sem hv. meiri hl. landbn. beitir, að bera þetta frv. aftur fram á þessu þingi, þar sem það var fellt í þessari hv. þd. á síðasta þingi. Ég vænti, að það muni sannast nú eins og áður, að það fái sömu útreið og komist ekki fram, nema ef vera kynni, að hv. frsm. sé nú orðinn svo fíkinn í ríkisrekstur bara vegna ríkisrekstrarins sjálfs. En ég undrast það ekki, þó að hv. þm. A.-Húnv. rispi sig eitthvað á þessari einkasölustefnu, sem hann nú hefir gengið inn á með flutningi þessa frv. og játar í grg. frv. að hann hafi þá skoðun, að sjálfsagt sé að stofna til ríkisrekstrar í þessu atriði, þó að engin skynsamleg ástæða sé þar fram borin fyrir nauðsyn þess. Hann hefir því gengið lengra út á þessa braut en sósíalistarnir sjálfir, því að þeir reyna þó samkv. sínum skoðunum að færa ýms rök fyrir því, að ríkisrekstur sé nauðsynlegur í ýmsum greinum og hafi margskonar ágæti í för með sér.
Ég hefði því vænzt þess, að hv. flm. reyndi að gera gangskör að því að sannfæra þdm. um, að hér væri einhver sérstök nauðsyn fyrir bendi, sem mælti með því, að þessi leið væri farin. En ég sé ekki, að það bóli á neinu í þá átt. — Að svo miklu leyti sem þetta frv. hefir verkanir gagnvart einstaklingum í þjóðfélaginu, þá mundi, ef það verður að lögum, tekin innflutningsheimild á trjáplöntum af þeim eina manni, sem nú hefir þá starfsemi með höndum, Sigurði Sigurðssyni fyrrv. búnaðarmálastjóra. Og ég get ekki séð, hvaða ástæða er til að taka þá heimild af þeim manni, sem verður að telja, að hafi farizt þetta mjög vel úr hendi undanfarið, og hefir bæði góða þekkingu og aðstöðu á þessu sviði til þess að láta þar gott eitt af starfi sinn leiða.
Það fer nú að verða hver silkihúfan upp af annari af þeim svívirðingum og ég vil segja níðingsskap, sem Alþingi leyfir sér að beita gegn þessum manni, ef það ætlar nú með slíkri áfergju undir yfirskini ríkisrekstrar að svipta hann þessari starfs- og tekjugrein og fara hana á aðrar hendur, sem engar líkur eru til, að leysi þetta starf betur af hendi. Þetta er þakklætið, sem sá maður fær, fyrir að hafa unnið af ósérplægni svo áratugum skiptir fyrir íslenzkan landbúnað.
Mig skal ekki undra á því, þó að hv. þm. A.-Húnv. klæi einhversstaðar ónotalega, þegar hann fer aftur að skriða úr flatsænginni frá sósíalistum, eftir sambúðina við þá um þetta frv.