19.02.1936
Sameinað þing: 3. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í B-deild Alþingistíðinda. (10)
Kosning fastanefnda
Hannes Jónsson:
Ég vil f. h. Bændafl. óska eftir því, að fjölgað verði í n., svo að við getum fengið tækifæri til þess að koma einum manni að. Alþ. hefir einu sinni orðið við þessari ósk okkar, og ég vænti þess, að svo verði enn að þessu sinni. Ég vonast eftir því, að hæstv. forseti vilji taka þetta til athugunar.