03.03.1936
Neðri deild: 14. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 682 í B-deild Alþingistíðinda. (1011)
8. mál, fóðurtryggingarsjóðir
*Pétur Ottesen:
Frv. þetta miðar að því að skapa öryggi fyrir landbúnaðinn að því leyti, sem það gengur í þá átt að tryggja búpening landsmanna fyrir áföllum sökum fóðurskorts.
Að undanförnu hafa verið gerðar ýmsar ráðstafanir hér á landi til þess að tryggja búpeningseign landsmanna. Það hafa verið skipaðir forðagæzlumenn, sem hafa haft það á hendi að athuga fóðurbirgðir manna á haustin og leiðbeina um ásetninginn. Jafnframt hafa þessir menn litið eftir því, hvernig með búpeninginn hefir verið farið. Þá hafa og verið sett lög um fóðurbirgðafélög í sama tilgangi. Og nú er borið fram frv. um fóðurtryggingarsjóði. Það má að sjálfsögðu segja, að þetta miði allt í tryggingaráttina, en því má þó ekki gleyma, að aðaltryggingin felst í ráðdeild og fyrirhyggju þeirra einstaklinga, sem landbúnaðinn stunda. Bregðist allt slíkt, þá koma allar þessar ráðstafanir að litlu gagni. Það má því ekki loka augunum fyrir aðaltryggingargrundvellinum, hyggindum og forsjálni bændanna. Hinsvegar skal því ekki neitað, að fóðurbirgðafélögin og frv. þetta, verði það að lögum, bæta allmjög aðstöðu manna í þessum efnum, og það því fremur, þegar svo er ástatt sent nú, að búrekstur manna borgar sig ekki. Meðan slíkt ástand varir, er það mikils virði fyrir landbændur að njóta slíks stuðnings sem þessa. Það er vitanlega eins ástatt um fjárveitingar til þessara hluta eins og aðrar fjárveitingar, að féð verður að sækja til atvinnurekstrarins. Um þá aðferð, sem hér er viðhöfð, má margt segja og víst er um það, að hún getur verið álitamál. Þó skal því ekki neitað, að eins og nú er ástatt fyrir landbúnaðinum, þá felst bæði í þessu frv. og lögunum um fóðurbirgðafélög stuðningur fyrir bændur til þess að tryggja sig fyrir áföllum, sem fyrir geta komið.
Skoðanamunurinn um frv. þetta, sem er á milli mín og flm. frv., sem sæti eiga í landbn., er aðallega sá, að ég vil, að sýslufélögin og hreppsnefndirnar hefðu hér rýmra umráðasvið en frv. gerir ráð fyrir, og að því miða brtt. þær, sem ég hefi flutt við frv. Eins og frv. er, þá er gert ráð fyrir í 2. gr., að tekið sé fram í lögunum sjálfum það, sem mér virðist réttara, að tekið sé upp í samþykktum, sem sýslufélögin gera. Brtt. mínar miða því meðal annars í þá átt, að ýms framkvæmdaratriði séu tekin fram í samþykktum, sem miðaðar séu við hvert einstakt sýslufélag. Þetta réttlætist með því, að hættan fyrir hverja grein búpeningsins er mjög mismunandi í hinum ýmsu héruðum. Eins og kunnugt er, fer það mjög eftir staðháttum.
Hv. frsm. lýsti því, að n. gæti fallizt á þær brtt. mínar bæði að formi og efni til, sem miða til umbóta á þessu atriði frv. aftur á móti lýsti hann því yfir, að n. gæti ekki fallizt á að fella niður 10. gr. frv., eins og ég legg til í brtt. mínum. Í þessari umræddu gr. er gert ráð fyrir, að heimilt verði að leggja fram úr fóðurtryggingarsjóði beinan styrk til manna undir vissum kringumstæðum, eins og t. d. þegar illa vorar og grasspretta er lítil, og ennfremur þegar nýting heyja er vond. Með þessari grein er það útilokað, að sjóðurinn verði til þess að grípa til, þegar harðindi eru og þar af leiðandi heyleysi fyrir dyrum hjá mönnum, heldur gefur gr. tilefni til þess, að menn fari beinlínis að setja á þennan sjóð. Breytingar þær, sem n. hefir lagt til, að gerðar verði á gr. þessari, draga að vísu dálítið úr þeirri hættu, sem á því getur verið, að sjóðurinn verki hreint og beint á móti tilgangi sínum, ef gr. verður látin standa. Ég vil ekki láta taka neitt beint fram í lögunum um þetta, heldur vil ég, að sýslunefndirnar og hreppsnefndirnar hafi þetta að meira og minna leyti á sínu valdi, svo þær geti hagað því eftir kringumstæðunum á hverjum stað. Þannig gæti ég hugsað mér, að gripið væri til sjóðanna og veittir einhverjir styrkir úr þeim, þegar menn yrðu fyrir áföllum af óviðráðanlegum orsökum, en þá væri það vitanlega sá bezti stuðningur, sem hægt væri að veita, að gera mönnum kleift að fá bústofn aftur. Um þetta vil ég láta héraðsstjórnirnar hafa sem óbundnastar hendur, og því held ég fast við brtt. mína um að fella 10. gr. frv. niður. Hinsvegar býst ég samt við, að brtt. n. verði samþ., sem gerir greinina dálítið betri en hún er í frv., en þá þarf þó jafnframt að bæta aftan við hana frekari skýringum. Annars eru það fleiri atriði í frv., sem ég vakti athygli á í n., að betur þyrfti að athuga, en út í umræður um þau skal ég ekki fara nú.
Þá var hv. frsm. að undrast yfir því, að ég skyldi ekki koma með fleiri brtt., og nefndi sérstaklega eitt atriði. Eins og sjá má á brtt. mínum, þá tók ég þann kostinn að bera aðallega fram brtt. um að rýmka umráðasvið sýslu- og sveitarfélaga í þessum málum.
Það er alkunna, að löggjafinn hefir í margvíslegum tilfellum gefið héruðum heimild til þess að gera hjá sér samþykktir, sem svo gild, sem lög, en samþykktir þessar hafa jafnan grundvallazt á því, að fyrir þeim væri meiri hluti þeirra manna, sem þátt hafa tekið í atkvgr. um þær, í sumum tilfellum hefir verið tilskilinn „kvalifiseraður“ meiri hluti. En samkv. 4. gr. frv. getur svo farið, að samþykkt komist á með minni hluta greiddra atkv. Það er af því, er hér segir í frv. um stofnun fóðurtryggingarsjóða, að hún teljist samþ., ef meiri hl. hreppsfél. í sýslunni sé því samþykkur; en það þarf ekki að fara saman meiri hl. hreppsfélaganna og meiri hl. þeirra, sem taka þátt í atkvgr. Fólksfjöldi í hreppunum er misjafn, og með þessari aðferð geta sjóðirnir komizt á fót með minni hl. þeirra, sem atkv. greiða, en slíkt er vitanlega gagnstætt þeirri stefnu, sem höfð er fyrir augum með því að heimila héruðunum að gera slíkar samþykktir. Þetta þótti mér athugavert, þegar málið lá fyrir n., og mér finnst það enn athugavert, og sjálfsagt að íhuga það við 3. umr., hvort ekki beri að hverfa frá þessu. Ég er yfirleitt samþ. öllum þeim brtt. sem n. flytur, en skal taka það fram, að ég hafði nokkuð að athuga við þá brtt. n. sem fer fram á, að þær samþykktir, sem byggðar eru upp í sýslu, en aðeins 2–5 hreppar taka þátt í eða mynda fóðurtryggingarsjóð, þá er í frv. gert ráð fyrir, að ekki fáist meiri ríkisstyrkur en sem sé miðaður við gripatölu þeirra manna, sem taka þátt í sjóðstofnuninni, því niðurjöfnunin á ríkisfénu í sýslurnar er byggð á gripafjöldanum í sýslunni. Nú er með brtt. n. ætlazt til, að þótt ekki taki fleiri hreppar þátt í sjóðstofnuninni, þá gætu þeir orðið aðnjótandi alls þess styrks, sem niðurjöfnun sýndi, að sýslan ætti að fá, ef allir hreppar sýslunnar tækju þátt í sjóðmynduninni, og ef miðað væri við gripatölu allrar sýslunnar. Gagnvart ríkissjóði er þetta kannske nokkuð langt gengið, en þó eru til öryggis því settar þær hömlur, að sýslubúar verða alltaf að leggja fram jafnmikið fé sjálfir, og gæti það þá orðið allstíf kvöð. — Ég vildi láta þetta koma fram af því, að mér virtist hv. frsm. vilja gefa til kynna, að meiri ágreiningur hefði verið í n. heldur en brtt. mínar bentu á. Allir nm. voru sammála um að láta sýslufélögin hafa sem rýmst svið með að ákveða um meðferð sjóðanna.
Brtt. mín á þskj. 88 er við 6. brtt. n., þar sem gert er ráð fyrir endurgreiðslu úr sjóðunum til manna, sem ekki hafa þegið styrk úr sjóðunum. og er í samræmi við það, þar sem tekið hefir verið upp að hætta greiðslu til sjóða, þegar þeir eru búnir að ná þeirri upphæð, sem þykir trygg; til samræmis við þetta þarf að setja inn ákvæði um, að ekki sé endurgreitt úr þeim sjóðum, sem samþ. hefir verið, að ekki megi skerða, og þess vegna hefi ég borið fram þessa brtt. við 6. brtt. n., og hljóðar hún þannig:
„Aftan við staflið h. bætist ný málsgr.: Ákvæði 3. og 1. málsgr. koma þó ekki til framkvæmda þar, sem svo er ákveðið í samþykkt, að fóðurtryggingarsjóð megi ekki skerða.“
Brtt. mín miðar eingöngu að því, að endurgreiðslur komi ekki til framkvæmda þar, sem svo er ákveðið, að sjóð megi ekki skerða; þess vegna getur þessi brtt. mín við brtt. n. fullkomlega samrýmzt frv.
Það er svo ekki fleira, sem ég hefi að athuga, eins og málið liggur fyrir. N. er óskipt með framgangi frv., eins og ég hefi tekið fram. Það er aðeins eftir að athuga 4. gr., en það má gera fyrir 3. umr., og ef til vill eru einhver fleiri smáatriði, sem þarf að lagfæra, og ég veit, að það verður n. sammála um fyrir 3. umr.