03.03.1936
Neðri deild: 14. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 688 í B-deild Alþingistíðinda. (1014)

8. mál, fóðurtryggingarsjóðir

*Pétur Ottesen:

Ég vil aðeins benda á það, að mér virðist miður vel viðeigandi, þegar allir eru sammála um afgreiðslu máls, að vera þá með hálfgerðar ýfingar, eins og hv. 2. þm. N.-M. var með í minn garð. Það er ekki í svo mörgum tilfellum, sem við erum sammála, að það sé rétt í þau fáu skipti, sem það kemur fyrir, að vera þá að búa til misklíðarefni, sem ekki eru á neinn byggð nema illu innræti. Ég vil aðeins benda á, að þetta er ekki eftirbreytnisvert. Ég skal ekki mælast undan því að fást við hann þar, sem okkur ber á milli, en það kemur illa við að fleyga mál, sem samkomulag er um, með því, sem ekki á við og er frá hinum illa. — Út af því, sem hv. þm. sagði, að ég hefði ekki komið fram með till. mínar í n., þá vil ég taka það fram, að ég gerði þar engar till., ég hreyfði þar vissum skoðunum og fékk ekki þær undirtektir, að ég gæti orðið samferða, þótt svo giftusamlega tækist til að lokum, að leiðir okkar lægju saman. Ég skal benda á það, að störfum n. var flaustrað svo, að till. hv. þm. Hafnf. hafði ekki verið samþ., þegar búið var að skrifa undir nál., svo það þurfti að skrifa nál. upp að nýju, til þess að till. kæmist inn. — Nei, ég held, að það sé bezt að vera ekki að gefa tilefni til slíkra hluta hér í d. eins og hv. þm. hefir gefið nú, og reyna heldur að haga betur og skynsamlegar til eftirleiðis.