27.04.1936
Efri deild: 57. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 722 í B-deild Alþingistíðinda. (1054)
8. mál, fóðurtryggingarsjóðir
Einar Árnason:
Ég vildi með fáum orðum. áður en þessari umr. er lokið, skýra afstöðu mína til þessa frv. — Ég skal strax taka það fram, að þó ég vilji ekki vekja deilur um málið, tel ég, að það skipti nokkru máli, hvort þetta frv. verður afgr. frá þinginu eða ekki, og þá í hvaða mynd það verður afgr.
Það er öllum kunnugt, að það eru margskonar lög til, sem eiga að miða að því að tryggja það, að bændur lendi ekki í fóðurskorti fyrir fénað sinn. Löggjafarvaldið hefir oft haft það mál til meðferðar og sett um það ýmsar reglur, sem flestar eru aðeins heimildir, en ekki ákveðnar fyrirskipanir. Það mun ekki vera annað, sem er skylda að fylgja, heldur en það, að það skuli vera fóðurskoðunarmenn í hverjum hreppi, sem eiga að meta fóðurbirgðir manna á haustnóttum og líta eftir, að þær séu nægar til. Hinsvegar hafa verið ákaflega lítið notuð þau heimildarlög fyrir hreppsfélög, sem nú eru til um það að hafa fyrirliggjandi fóðurforða, og mér virðist, að einmitt hvað lítið slík lög hafa verið notuð, bendi til þess, að bændur yfirleitt séu ekki ákaflega fíknir í löggjöf um þessi efni.
Það finna allir til þess, og þó einkum bændur, hve ákaflega hættulegt það er, þegar almennur fóðurskortur verður í sveitum. En ég held, að það sé búið að sýna sig, að það sé eitthvað annað heldur en löggjöf, sem geti komið í veg fyrir það. Ég held að það hljóti í raun og veru að fylgja þroska manna í þessu efni, að menn finni sjálfir til ábyrgðar og sé það ljóst, að þeir eiga að bera ábyrgðina af sínum eigin verkum.
Það hefir verið tekið fram, og það réttilega, að ekki hafi mikið borið á fóðurskorti á undanförnum árum. Það er að mínu áliti aðallega að þakka tvennu. Það er fyrst og fremst af því, að menn eru orðnir töluvert gætnari með ásetning heldur en var fyrir nokkuð löngu síðan. Það er líka því að þakka, að nú eru miklu fleiri möguleikar á því að afla sér fóðurs heldur en var áður.
Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er eitt af þeim mörgu sem eru í þessu efni, sem eru heimildarlög, og ég tel nú, að það sé kannske mesti kosturinn við það. En þó er það svo, að sýslunefndir geta gert samþ. um það að láta sýslurnar ganga undir þessi lög. Þetta er það, sem ég tel varhugaverðast í frv. Ég lít svipað á þetta eins og hv. minni hl. n. Ég álít, að eftir því, sem svæðin eru stærri, sem ábyrgðin nær yfir, eftir því sé það hættulegra. Það er nauðsynlegt að breyta frv. í þá átt, að það séu hreppsfélögin sjálf, sem ráði því út af fyrir sig, hvort þau gangi undir slíkar tryggingar, sem hér er gert ráð fyrir. Það er gert ráð fyrir því í frv., að sýslun. geti með meiri hl. atkv. samþ. að stofna fóðurtryggingarsjóði. Nú er það vitanlegt, að innan margra sýslufélaga er svo ástatt, að það er afarólík aðstaða í hinum ýmsu sýsluhlutum. Hvað eiga t. d. sjóþorpin á Austfjörðum sameiginlegt í þessu máli við hreppana upp á Héraði? Og hvað á Grímsey sameiginlegt með innhreppum Eyjafjarðarsýslu? Þetta er svo gerólíkt, að ég álít alls ekki rétt, að það sé einhver tilviljunarmeirihl. í sýslunefnd, sem geti ráðið því, hvort slíkar samþykktir séu gerðar eins og þær, sem hér er gert ráð fyrir í frv.
Ég býst ekki við, að ég treysti mér til að greiða atkv. með þessu frv. út úr deildinni, ef því verður ekki breytt í þá átt, að hreppunum sé veittur sjálfsákvörðunarréttur um þetta mál.
Það er ekki mikill vandi að búa til lög um það, að menn skuli hafa til á hverjum tíma svo og svo mikinn fóðurforða. En það mun sannast, að það verða nokkrir erfiðleikur á því í framkvæmdinni. Ég hefi dálitla reynslu í þessum málum, af því að ég átti nokkurn þátt í því á sínum tíma, að í mínu héraði voru gerðar ráðstafanir til þess, að það væri tryggt á haustnóttum að hafa nægan fóðurforða til þess, að hægt væri að hjálpa, ef almennur fóðurskortur yrði. Ef þetta ætti að gerast, þá er nauðsynlegt að gera það, áður en hafís lokaði höfnum, en það reyndist erfitt að gera samninga við verzlanir, eins og gert er ráð fyrir í þessu frv., sem von er, því að það er ómögulegt að vita, hvort þessi fóðurforði, sem keyptur er, verður notaður eða ekki. Og ef hann ekki er notaður, hvað á þá að gera við hann? Verðlag á kornvöru er breytilegt, og það getur orðið miklu lægra verð á kornvöru næsta ár, og þá situr verzlunin uppi með þennan fóðurforða, sem hefir orðið miklu dýrari heldur en hægt er að fá hann handa mönnum. Ef fóðurforðinn yrði ekki heldur notaður handa mönnum, þá yrðu ekki síður vandræði, og hvað á þá að gera við þennan forða, þegar hann ekki verður notaður? Þetta var reynt í 1 eða 2 ár í Eyjafirði, svo féllu menn frá því af því að það reyndist svo örðugt: þó á Eyjafjarðarsýsla sjóð, á annað hundrað þús. kr., sem vel mætti nota til hjálpar, en það hefir aldrei verið gert. Í Eyjafjarðarsýslu hefir verið notuð allt önnur aðferð heldur en að stofna slíka sjóði. Það eru samtök bændanna sjálfra, sem hafa séð fyrir því, að þeirra verzlun hefir á hverjum tíma, eftir því, sem möguleikar eru til, þann fóðurforða, sem nauðsynlegur er fyrir sýslubúa, og nú í þessu harða ári, sem nú hefir gengið yfir, sem ekki hefir síður komið hart niður á Eyfirðingum en öðrum, þá veit ég ekki annað en að þessi félagslegu samtök hafi komið í veg fyrir, að nokkur vandræði hlytust af fóðurskorti.
Hv. frsm. meiri hl. tók það fram, að ef það væru einhverjir hreppar, sem ekki vildu ganga undir þessi lög, þá gætu þeir stofnað fóðurtryggingarsjóði samkv. öðrum lögum. Það eru ákvæði um þetta í 5. gr. frv., en ég skil þau ákvæði þannig, að þau gildi aðeins á því tímabili, sem sýslunefndirnar ákveða að gera slík, samþykkt, og þá verði hrepparnir að segja til þess innan 4 vikna, eftir að sýslunefndirnar hafa samþ. að stofna fóðurtryggingarsjóði. Við skulum hugsa okkur, að einhver hreppur tæki ekki þessa ákvörðun fyrr en einu, tveimur eða þremur árum eftir að sýslun. hefði gert þessa samþykkt. Þá vil ég spyrja: Getur sá hreppur fengið að hverfa út úr þeim félagsskap, sem gerður er samkv. þessum lögum, og gengið undir aðrar reglur? Það er hugsanlegt, að hlutaðeigandi hreppi fyndist eftir eins eða tveggja ára reynslu, að það væri betra að vera ekki í þessu heildarfélagi. En fá þeir þá að losna?
Í 12. gr. frv. er það tekið fram, að þegar óvenju harðindi hafa gengið og almennur fóðurskortur verður, þá sé það heimilt að láta nokkuð af fóðurforðanum endurgjaldslaust til þeirra bænda, sem verst eru staddir. Nú skilst mér að það hljóti að verða í þessum félagsskap fleiri en venjulegu eru nefndir bændur. Mér skilst að þeir kauptúnshreppar, sem eru innan sýslufélaganna, og þar, sem íbúar þeirra eiga einhvern kvikfénað og vantar fóður, að þeir hljóti líka að koma í þennan félagsskap. En nú er reynslan sú, að í sumum kauptúnum og kaupstöðum er búpeningur að meira eða minna leyti á haustnóttum settur á lítið fóður. Hugsunin er að fá keypt fóður annarsstaðar að. En nú getur farið svo að þetta heyfóður fáist ekki, þegar kemur fram á veturinn, ef almennur fóðurskortur er. Þá verður þessi fóðurtryggingarsjóður þegar á haustnóttum að ætla þessum mönnum fóður handa skepnum þeirra. Þegar þeir svo verða fóðurlausir og almennt fóðurleysi er, þá hljóta þeir að fá það endurgjaldslaust eða endurgjaldslítið. og þá finnst mér, að það verði að taka það fram, að það séu ekki eingöngu bændur, sem þessi fóðurtryggingarsamþykkt nær yfir.
Þá er það 9. gr. frv. Ég tel, að ákvæði 9. gr. ýti undir menn eins og tekið hefir verið fram í umr. að setja ógætilega á, og ef það væri svo, þá álít ég, að það sé skaðlegt ákvæði í frv. Ég held, að öll lagaákvæði, sem mið, að því að taka frá mönnum ábyrgðartilfinninguna um það að sjá fénaði sínum farborða, séu hættuleg. Ég er ákaflega hræddur um, eftir minni reynslu, og ég hefi nú fengizt við búskap milli 30 og 40 ár, að það geti leitt til þess, að þeir, sem eru heldur hugsunarlitlir í þessum efnum, láti það ráðast að setja á „sjóðinn og gaddinn“, eins og hv. minni hl. orðaði það. Og þá er ég hræddur um, að í mörgum tilfellum verði það svo, að þegar þessa menn ber upp á sker, þá verði þeir að fá hjálp úr þessum sjóði. Svo þegar kemur til að greiða andvirði þeirrar hjálpar, þá verður lítið til upp í það.
Ég skal ekki setja fótinn fyrir það, að þetta frv. fái að ganga til 3. umr., en ég legg mikla áherzlu á það, að áður en frv. verður afgr. úr þessari hv. d., verði því breytt þannig, að það verði ekki sýslurnar, sem verði hlutaðeigendur að þessum fóðurtryggingarsjóðum, heldur hreppsfélögin sjálf. Þá mundi verða miklu auðveldara að hafa eftirlit með framkvæmd laganna heldur en ef heilt sýslufélag ætti í hlut. Mér finnst, að reynslan hafi verið sú, að það sé ekki mikið að byggja á þeim skýrslum, sem haustskoðunarmennirnir hafa aðstöðu til að gefa um fóðurforða manna. Þó að þessir menn geri það eftir beztu samvizku, þá er þetta verk þannig, að það er ekki hægt að byggja á því, svo öruggt sé. Þá er grundvöllurinn undir þessu allt of veikur til þess, að stjórn þessa sjóðs innan sýslunnar geti gert nokkrar þær ráðstafanir, sem verulegt vit sé í. Það er óhyggilegt að fara að stofna til mikilla fóðurbætiskaupa, og það er sjáanlegt, að slíkt er ekki rétt, ef ekki er séð fyrir því, að á ábyggilegum grundvelli sé byggt. En undirstaðan undir þessu eiga að vera skýrslur skoðunarmannanna, sem ég álít, að hljóti að vera óábyggilegar, jafnvel þó að skoðunarmennirnir geri þær eftir beztu vitund. Ég hefi ekki ætlað mér að vekja deilur um þetta mál, heldur aðeins benda á, hvernig ég lít á það. Það er ekki svo að skilja, að ég sé að heimta, að menn taki tillit til minnar reynslu í þessu efni. En eftir því, hvernig ég hefi athugað um þessi mál þau ár, sem ég hefi fengizt við búskap, þá er þetta mín skoðun.