27.04.1936
Efri deild: 57. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (1055)

8. mál, fóðurtryggingarsjóðir

*Frsm. meiri hl. (Páll Hermannsson):

Mér skilst, að það sé aðallega fyrir 3. umr., sem verður að semja við eða sannfæra hæstv. forseta. Mér skildist, að hann ætlaði að láta málið ganga til 3. umr. Það er þá kannske ástæðulaust að vera nokkuð að yfirvega sérstaklega það, sem hann tók fram um þetta frv. — Hæstv. forseti spurði t. d. um það, hvað þorpin og kauptúnin á Austfjörðum ættu sameiginlegt með sveitunum í þessu efni. Þessu svaraði hann sjálfur, þar sem hann gat um, að einmitt í þorpunum væri algengt, að yrði fóðurskortur. Þá benti hv. þm. líka á það, að ef legið væri með fóðurforðann, gæti hann fallið í verði; en hann getur líka hækkað í verði, en vitanlega gilda um það atriði alveg sömu reglur og þó að aðeins einn einstaklingur keypti út af fyrir sig. Einstaklingurinn getur vitanlega átt á hættu líka, að fóðurforðinn falli í verði, og ég er viss um, að hv. 2. þm. Eyf. vill ekki, að einstaklingurinn setji það fyrir sig.

Ég veit, að hv. þm. sér ekki sömu ástæðu til þess og aðrir að stofna tryggingarsjóði, fyrst hans sýsla á tryggingarsjóð, sem nemur á annað hundr. þús. kr. En í einhverju augnamiði hefir þessi sjóður verið stofnaður, og það er sennilegt, að það hafi verið í líku augnamiði og hér er gert ráð fyrir. Mér skildist á hv. þm., að hann vildi fá frv. breytt þannig, að þessi samtök skyldu aðeins ná yfir sveitarfélögin, en ekki sýslufélögin. Ég geri ráð fyrir því, þó að ég viti það ekki, að slík breyt. á frv. yrði að þessu sinni aðeins til þess eins, að það yrði ekki að lögum nú. Ég læt náttúrlega hv. þm. um það, hvort hann telur það heppilegra að bíða.

Þá var hv. þm. að segja það undir lok ræðu sinnrar, að sér fyndist 9. gr. frv. beinlínis ýta undir ógætilegan ásetning. Mér finnst því rétt, með leyfi hæstv. forseta, að lesa greinina upp. Hún hljóðar svo:

„Stjórnir fóðurtryggingarsjóða skulu á hverju hausti afla sér hjá forðagæzlumönnum glöggs yfirlits um ásetning, hver í sínu umdæmi. Sé nokkur ástæða til að ætla, að einhverja búfjáreigendur innan umdæmisins skorti fóður handa búfé sínu á komandi vetri, og sé ekki hægt að tryggja ásetning þeirra á annan hátt, skal sjóðsstjórnin verja sjóðnum til kaupa fóðurbætis, og geyma hann á þeim stöðum í sýslunni, sem hagkvæmast er fyrir búfjáreigendur.“

Það er sem sé gengið út frá því í þessari gr., að áður en sjóðnum er varið til fóðurbætiskaupa, sé leitað annara þeirra ráða, sem fyrir hendi eru til þess að bæta úr fóðurskorti, t. d. að nota það vald, sem nú er þegar til í sambandi við fóðurskoðun á hausti og forðagæzlu. Mér finnst satt að segja, að þessi gr. hljóði ekki upp á miklu meira heldur en nú tíðkast. Ég geri ráð fyrir, að það verði framvegis eins og hingað til leitað þeirra ráða, sem hægt er, og að því loknu yrði svo reynt að hafa fyrirliggjandi fóður. Hvað annað mundi verða gert nú.

Mér fannst nokkuð líkt um tilvitnun hv. þm. í 12. gr. Hann skildi hana svo, að það gæti orðið úthlutað gefins nokkuð ógætilega úr þessum sjóði. En eftir 12. gr. er ekki um það að ræða, nema þegar almennur fóðurskortur er vegna vetrarharðinda, og jafnframt hafi hlutaðeigendi maður sett forsvaranlega á. Það má vera, að það hafi ekki verið eins algengt, að slíkir menn hafi átt kost á að fá fóður gefins, en ekki finnst mér ólíklegt, að undir þeim kringumstæðum, sem nú eru, þyki óhjákvæmilegt að láta fóður af hendi gefins, þegar harðindi eru óvenjuleg og fátækir menn eiga í hlut. Og ég verð ekki ánægður núna, nema þessi aðferð verði höfð í sambandi við þau miklu harðindi, sem nú steðja að miklum hluta landsmanna, sem sé sú, að ekki verði tekinn af búendum síðasti gripurinn til þess að borga það fóður, sem eyddist í vetur.