18.04.1936
Neðri deild: 51. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 782 í B-deild Alþingistíðinda. (1138)
63. mál, sveitarstjórnarkosningar
Frsm. (Thor Thors):
Það er nú svo langt um liðið síðan hér var um þetta mál rætt, að ég er búinn að gleyma mörgu af því, sem ýmsir hv. þm. sögðu þá. Annars er það ekki margt, sem ég þarf að svara eða taka fram, því að málið er svo þaulrætt af hv. þm. og allshn. Þó vil ég taka það fram, að það er misskilningur hjá hv. 2. þm. N.-M., er hann sagði, að allshn. legði til, að kosningar til sveitarstjórna færu fram síðasta sunnudag maímánaðar. Það hefir alltaf verið ætlazt til, að þær færu fram síðasta sunnudag í júní, og hefir n. enga breytingu ætlað að gera á því.
Af því að það hefir komið fram hjá ýmsum hv. þm., að hér væri eitthvert mikið byltingafrv. á ferðinni, vil ég taka það fram, að frv. er yfirleitt ofur einfalt og gerir litlar breyt. frá því, sem nú er. Aðalefni þess fer í þá átt að samræma kosningar til sveitar- og bæjarstjórna við kosningar til Alþingis. Getur því engin hætta verið á ferðum, þó að frv. nái fram að ganga.