04.05.1936
Efri deild: 63. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í B-deild Alþingistíðinda. (1149)
63. mál, sveitarstjórnarkosningar
*Sigurjón Á. Ólafsson:
Mér þykir hlýða að segja fáein orð við þessa umr.
Þó að ég skrifaði undir nál. fyrirvaralaust, skal ég geta þess, að ég mun fylgja frv. með þeim breyt., sem eru á þskj. 488, þrátt fyrir að ég sé ekki allskostar ánægður með vissar gr. frv. En ég tel kosti þess fram yfir þá löggjöf, sem nú gildir, svo mikla, að ég vil vinna að því, að frv. verði að lögum, og læt því óánægju mína niður falla um það, sem mér þykir ábótavant. Ég vil þó benda á einn galla í fyrirkomulaginu við óhlutbundnu kosningarnar, sem ræðir um í 25. gr. Þar er gert ráð fyrir, að hver kjósandi tilgreini heimilisfang þess, sem hann kýs. Þetta getur gengið í sveitum, þar sem ekki er um marga kjósendur að ræða. Það kom og fram í umr. í n., að menn yfirleitt líta svo á, að ekki sé um leynilegar kosningar að ræða, þegar kunnugir menn fjalla um atkvæðin, því að rithönd manna muni yfirleitt vera auðþekkt. Ég býst við, að nokkur rök liggi að þessari skoðun, og tel þetta því ágalla. Þrátt fyrir þetta gat n. ekki fundið neitt annað fyrirkomulag heppilegra, úr því að óhlutbundnar kosningar eru leyfðar, og gekk frá því að gera breytingar á því, úr því að það ákvæði var fellt í n., að kjósandinn skrifaði aðeins tölu í staðinn fyrir nafn.
Annað atriði, sem ég er ekki heldur ánægður með, en mun þó sætta mig við, er það fyrirkomulag, að þurfi að hafa tvo kjörfundi, annan til þess að kjósa aðalmenn, en hinn til þess að kjósa varamenn. N. gafst einnig upp á því að finna lausn á þessu, sem gæti komið að notum, en viðurkenndi hinsvegar, að þetta mundi e. t. v. undir ýmsum kringumstæðum rekast á. Menn voru yfirleitt ekki ánægðir með þetta, en ég komst að þeirri niðurstöðu, hvað mig snerti, að það sé rétt að lofa reynslunni að skera úr um það, hvernig þessu verður tekið í sveitum landsins, þó að ég þykist sjá, að þetta sé ekki sem bezt fyrirkomulag, eins og hv. frsm. réttilega gat um, og n. vildi fara varlega í það að gera efnisbreyt. á frv., ef það skyldi valda því, að það yrði fellt í hv. Nd. Ég taldi rétt að láta þetta koma fram við þessa umr. málsins. Ég er ekki ánægður með þetta fyrirkomulag þrátt fyrir allt, þó að ég geti fylgt frv., af því að í því felast svo miklar umbætur.
31. gr., sem hv. 10. landsk. minntist á, er sjálfsagt fyrir n. að athuga, ef getur orðið árekstur milli tveggja frv. verður að samræma ákvæði þessara tveggja frv., verði þau bæði að lögum.
Ég hefi svo ekki meira um þetta að segja, en ég þarf ekki að taka það fram um hina væntanl. brtt. hv. 10. landsk., að henni get ég ekki fylgt, því að hún stefnir í gagnstæða átt við það, sem ég óska í þessu efni.