05.05.1936
Efri deild: 65. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 789 í B-deild Alþingistíðinda. (1155)
63. mál, sveitarstjórnarkosningar
*Frsm. meiri hl. (Ingvar Pálmason):
Eins og ég gat um við 2. umr. þessa máls, þá hefir það orsakazt af þeim breyt., sem á frv. voru gerðar í Nd., að það vill kenna nokkurs ósamræmis um hin einstöku ákvæði frv. Ég gat um þetta þá, og þótt n. við 2. umr. reyndi að lagfæra þetta lítilsháttar, var bent á það undir umr., að ennþá mundi vera ástæða til að lagfæra frv. Málið hefir því verið athugað á ný, og hefir meiri hl. allshn. orðið ásáttur um að bera fram 3 brtt.
1. brtt. er við 3. gr. og er þess efnis, að ekki sé skylt að kjósa varamenn í hreppsnefndir, þar sem kosningar séu óhlutbundnar. Þetta kom til af því, að það verður a. m. k. í hreppum nokkuð vafningasamt að koma við kosningum á varamönnum. Og þó að ég játi, að þær breyt. á frv., sem þetta leiðir af sér, séu til hins lakara, þá tel ég, eins og komið er, að ekki sé annað fært en að reyna að laga þetta ósamræmi eins og hægt er og afgr. frv. sem l. Þetta ósamræmi stafar sem sé af því, að þegar frv. var samið upphaflega, þá var það gert út frá þeirri hugsjón, að allsstaðar væru viðhafðar hlutfallskosningar. Svo var þessi breyt. gerð í Nd., að sumstaðar skyldi ekki vera hlutfallskosning, og við það lentu ýmsir hortittir í frv.
Þá er 2. brtt. Þar leggur n. til, að aftan við 23. gr. komi ný gr., sem taki það skýrt fram, að þar sem ekki er viðhöfð hlutbundin kosning, skuli ekki vera nema ein kjörstjórn.
Þá er 3. brtt. Þar er prentvilla, brtt. er við 31. gr., en ekki 3. gr., eins og stendur í brtt. Þar er gert ráð fyrir, að gr. verði orðuð um. Þar er ekki um efnisbreyt. að ræða, heldur aðeins annað orðalag, svo að ekki verði hægt að skilja hana svo, að skólanefndarmenn skuli kosnir af hreppsnefndum. Á þetta var bent við 2. umr., og þótti n. rétt að orða gr. um, svo að hún yrði ekki misskilin, því að það er gefin sök, að ef fræðslulagafrv. það, sem nú liggur fyrir þinginu verður samþ., þá eru þar ákvæði um kosningu skólanefnda.
Ég held, að þessar brtt. allar séu heldur til lagfæringar á frv., og vænti ég því, að d. geti samþ. þær.