06.05.1936
Neðri deild: 64. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 792 í B-deild Alþingistíðinda. (1164)
63. mál, sveitarstjórnarkosningar
Frsm. (Thor Thors):
Ég vil aðeins geta þess, að hv. Ed. hefir gert smávægilegar breyt. við frv. frá því, er það var hér til meðferðar. Hefir hún tekið upp aftur það ákvæði, sem upphaflega var í frv., að heimilt skuli að skipta hreppum í kjördeildir, eins og gildir um kosningar til Alþingis, og að ekki sé skylt að kjósa varamenn í hreppsnefndir þar, sem hreppsnefndarkosningar eru óhlutbundnar. Þetta er aðalbreytingin, sem Ed. hefir gert, og þar sem hún er smávægileg, vænti ég, að frv. verði samþ. eins og það liggur fyrir.