07.03.1936
Efri deild: 18. fundur, 50. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (1169)

64. mál, ólöglegar fiskveiðar

Frsm. (Ingvar Pálmason):

Það er rétt hjá hv. 1. þm. Skagf., að venjulega leggur stj. fram slík frv. sjálf, en meiri hl. n. getur ekki litið svo á, að nein fyrirmæli séu um það í stjskr. Lögfræðingur, sem meiri hl. sneri sér til, áleit, að 23. gr. segði ekkert um þetta, heldur væru þar aðeins ákvæði um það, að bráðabirgðalög skuli ávallt leggjast í frv.formi fyrir Alþingi.